fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Hávær orðrómur að GTA VI verði með kvenkyns aðalpersónu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 8. mars 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjötti leikur Grand Theft Auto verður með kvenkyns aðalpersónu og mun gerast í Vice City og í Suður-Ameríku. Þetta kemur fram í nýju myndbandi Youtube-rásarinnar The Know. Slíkir orðrómar eru algengir, sérstaklega á Youtube, en The Know hefur fram að þessu haft rétt fyrir sér varðandi innanhúsupplýsingar úr tölvuleikjaheiminum, síðast um leikinn Dark Souls III.

Samkvæmt The Know mun leikurinn koma út árið 2022, en ekki liggi fyrir hvort hann muni gerast á níunda áratugnum líkt og GTA: Vice City, en miðað við þann leik sem og orðróm um leiksvæði í Suður-Ameríku er líklegt að söguþráðurinn verði innblásinn af kvikmyndinni Scarface.

Grand Theft Auto-leikirnir eru mjög umdeildir enda bannaðir börnum, hefur þeim verið gefið að sök að hvetja til ofbeldis, vændis og kvenfyrirlitningu. Það hefur ekki haft teljandi áhrif á sölutölurnar en leikirnir hafa verið seldir í meira en 235 milljón eintökum. Fram að þessu hefur ekki verið hægt að spila sem kvenpersóna, fyrir utan fyrsta leikinn frá árinu 1997. Í síðasta leik voru þrjár aðalpersónur og ekki hægt að útiloka að hugsanleg kvenpersóna í GTA VI verði ein af nokkrum.

Hér er hægt að sjá myndband The Know.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum