fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
FókusKynning

Prenta sálmaskrárnar fyrir útfarir

Kynning

Hvíta Örkin

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 2. september 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Prentstofan Hvíta Örkin, sem er til húsa á Hótel Natura (Hótel Loftleiðum) við Reykjavíkurflugvöll, veitir almenna prentþjónustu af ýmsu tagi en hefur skapað sér mikla sérstöðu við hönnun og framleiðslu sálmaskráa fyrir útfarir. Hvíta örkin er þekkt fyrir afar vönduð vinnubrögð á þessu sviði, sem og þjónustu sem er í senn persónuleg, nærgætin og afar sveigjanleg.

„Það er misjafnt hvað fólk vill hafa mikil afskipti af hönnun sálmaskrárinnar. Sumir hafa ekki áhuga á að lesa yfir áður en prentað er, en þá biðjum við presta eða organista að gera það. En aðrir eru nákvæmari og vilja fá að sjá hvað þeir eru að fá og þá bjóðum við fólki að koma til okkar og það sest hérna við tölvuna hjá mér á meðan ég er að brjóta um,“ segir Ögmundur Kristinsson, annar eigenda fyrirtækisins. Blaðamaður hefur á orði að þetta hljómi sem mjög persónuleg þjónusta:

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Já, vissulega. Þetta eru auðvitað viðkvæmar aðstæður og oft kemur fólk hingað í sorg, eðli málsins samkvæmt. Við kappkostum að vinna af nærgætni og útbúum sálmaskrárnar þannig að fólk viti hvað það er að fá hjá okkur og það sjái hvernig prentgripurinn mun líta út í kirkjunni, því oft líta hlutir öðruvísi út á tölvuskjá en á prenti. Það er í sjálfu sér ekki gleðiefni en þó ánægjuleg staðreynd að vegna okkar vinnubragða og viðmóts leitar fólk til okkar aftur. Það er lífsins gangur að margir þurfa á þjónustu sem þessari að halda oftar en einu sinni og okkur þykir vænt um að fólk treysti okkur fyrir þessum vandasömu verkefnum á erfiðum stundum.“

Þó að Hvíta Örkin sé staðsett vestarlega í Reykjavík vinnur fyrirtækið þessi verkefni fyrir fólk um allt land:
„Við fáum mikið af verkbeiðnum utan af landi. En fólk í viðkomandi byggðarlagi hefur þá einhvern tíma séð sálmaskrá frá okkur við útför og hefur þess vegna samband þegar það þarf á þessari þjónustu að halda. Þannig hefur orðsporið breiðst út. Þegar við erum búin að tala við prestinn eða organistann á viðkomandi stað er sálmaskráin lesin yfir og við sendum pdf-skjal á milli. Af því að við erum við Reykjavíkurflugvöll sendum við þetta stundum með flugi eða, sem er algengara, að einhver aðstandandi sem ætlar að vera við útförina, kemur við og tekur sálmaskrána,“ segir Ögmundur.

Þegar sálmaskrár eru prentaðar vegna útfara á höfuðborgarsvæðinu sjá starfsmenn Hvítu Arkarinnar hins vegar sjálfir um að koma efninu til viðkomandi útfararstofu til að tryggja að það lendi ekki í rangri kirkju.

Ögmundur mælir með því að fólk sé tímanlega í að panta prentun sálmaskrár.

„Við gerum okkur grein fyrir því að þessi verk eru oft með seinni skipunum. Í dag er til dæmis útför klukkan 13 sem við gerðum sálmaskrá fyrir í morgun af því að hún var ekki tilbúin fyrr. Við erum yfirleitt alltaf síðastir í röðinni, fólk er seint til vegna þess að það þarf að huga að svo mörgu við undirbúning útfararinnar. Við björgum alltaf öllu og stökkvum til hingað á kvöldin eða um helgar ef þarf.“

Prentsmiðjan var áður í eigu Flugleiða (sem síðar varð Icelandair) en núverandi eigendur keyptu hana árið 1993. Prentsmiðjan vinnur mikið fyrir Icelandair og heldur netfanginu prentstofan@icelandair.is. Eigendur eru tveir, Ögmundur Kristinsson og Hjalti Valur Helgason. Auk þeirra starfa á stofunni Jón Arason og Ólafur Bergmann.
Sem fyrr segir er Hvíta Örkin staðsett á Hótel Loftleiðum við Reykjavíkurflugvöll og aðgengi að stofunni er gott.

Heimasíða er www.hvitaorkin.is og símanúmer: 551-0255.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum