fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
FókusKynning

Á Eldheimum fræðast þjóðhátíðargestir um sögu eldgosanna

Kynning

Eldheimasafnið er opið laugardag, sunnudag og mánudag frá 13.00 til 17.00

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 4. ágúst 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum í sjálfu sér ekki að fá fleiri gesti um verslunarmannahelgina en vanalega en við erum hins vegar að fá fjölmarga þjóðhátíðargesti hingað. Það er útbreiddur misskilningur að hér séu allir bara að drekka og skemmta sér á Þjóðhátíð. Hér er margt fólk sem nýtur þess að skoða menninguna yfir daginn og kemur hingað á safnið til að fræðast um eldgosin. Hins vegar er það einstakt um verslunarmannahelgina að þá eru einu gestirnir fólk sem sækir Þjóðhátíðina, því þá eru allar ferðir bókaðar fyrir þjóðhátíðargesti, hvort sem það er með flugi eða Herjólfi. Aðrar helgar koma hingað margir erlendir og innlendir ferðamenn.“

Þetta segir Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eldheima, safns um Heimaeyjargosið og Surtseyjargosið, tvo heimssögulega viðburði. Safnið var opnað í maí árið 2014 og er því rúmlega þriggja ára gamalt. Um tvær ólíkar og aðskildar sýningar er að ræða, Heimaeyjargosið 1973, sem lagði byggð í Vestmannaeyjum í rúst tímabundið, og hins vegar Surtseyjargosið, en það var neðansjávargos á árunum 1963–1967, sem myndaði Surtsey en eyjan er á heimsminjaskrá.

„Miðpunktur sýningarinnar um Heimaeyjargosið eru rústir húss úr gosinu. Hægt er að skoða það frá öllum hliðum en auk þess er hægt að standa við skjá með stýripinna og ferðast í gegnum húsið til að sjá hvaða hlutir voru skildir eftir og í hvaða ástandi þeir komu undan ösku eftir 40 ár,“ segir Kristín.

Sú staðreynd að enginn lét lífið af völdum gossins hefur gert samstarf við íbúa um að gera þessari sögu skil auðveldara: „Þó að vissulega sé sárt að missa heimili sitt er það ekkert í líkingu við að missa ástvini. Núna er sá tími runninn upp að fólk er tilbúið að rifja upp þessa sögu og vill halda henni til haga fyrir komandi kynslóðir.“

Kristín segir að sýningarnar um Heimaeyjargosið og Surtseyjargosið séu gjörólíkar: „Annars vegar eru það þessir mannlegu hrakningar og hins vegar eru það vísindin, en í Surtseyjarsýningunni er ferlið rakið nákvæmlega og vísindalegar upplýsingar framsettar á aðgengilegan hátt.“

Eldheimar eru til húsa að Suðurvegi/Gerðisbraut 10 í Vestmannaeyjum, eða við rætur fjallsins þar sem Heimaeyjargosið átti sér stað: „Fólk tekur þetta í sömu ferðinni, það gengur jafnvel á gíginn eða fer um hraunið og fær síðan restina af sögunni hérna á safninu á eftir,“ segir Kristín.

Nánari upplýsingar um sýningarnar er að finna á Facebook eða heimasíðunni eldheimar.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum