fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Hágæða heitir pottar á enn lægra verði – infrarauðir saunaklefar

Kynning

Goddi selur heita potta og saunavörur

Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Sunnudaginn 16. september 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Goddi, Auðbrekku 19, Kópavogi, er með afar fjölbreytt vöruúrval og er meðal annars framarlega í sölu á heitum pottum, lokum yfir heita potta, infrarauðum saunaklefum og hitaklefum, auk hefðbundinna gufubaða og ýmiss konar búnaðar þeim tengdum.

Goddi hefur getið sér gott orð fyrir að selja vandaða heita potta á afar hagstæðu verði en um er að ræða heita potta af tegundunum Hydro og Ocean. Þetta eru afar vandaðir pottar með loki úr sterku leðurlíki og hlífin er gerð fyrir íslenskt veðurfar. Núna hefur verðið lækkað enn meira því Goddi leggur áherslu á að skila áhrifum af hagstæðu gengi beint út í verðlagningu sína. Verð á potti með loki og tröppu er aðeins 620.000 krónur. 

Einnig eru í boði lok á heita potta í þremur litum og stærðunum 220×220 200×200 cm, 208×208 cm og 213×213 cm á aðeins 58.000 kr. – einnig veruleg verðlækkun – en þessi lok henta einstaklega vel fyrir íslenskra veðráttu. Lokin eru samanbrjótanleg í miðju, með góðum festingum og svuntu, eru létt og meðfærileg.

Infrarauðir saunaklefar eru áhugaverð uppfinning en Goddi býður þessa klefa á mjög hagstæðu verði, eða frá aðeins 180 þúsund krónum. Hægt er að fá klefa sem eru frá tveggja manna upp í fjögurra manna. Infrarauðir geislar, eða IR-greislar, hafa ýmsa kosti fyrir heilsu manna, til dæmis örva þeir líkamann sem getur brennt allt að 600 hitaeiningum á 30 mínútum og fólk svitnar þrefalt meira en í hefðbundnu saunabaði. IR-geislar örva æðakerfið og auka blóðflæði, víkka æðar, lækka blóðþrýsting og fá hjartað til að slá hraðar, sem styrkir og eflir hjartavöðvann. IR-geislar eru mikið notaðir til lækninga, við tognun, stirðleika í liðum og öðrum vöðvaverkjum, og þeir fjarlægja mjólkursýru og koldíoxíð úr vöðvum.

Ítarlegri fróðleik um IR-geisla og IR-saunabaðklefa má finna á heimasíðu Godda, goddi.is
Goddi býður líka upp á mikið úrval af hefðbundnum saunaböðum frá finnska gæðaframleiðandanum Harvia. Er þar bæði um að ræða heilu gufuböðin og einstaka hluta þeirra og fylgihluti. Gott er að fá ráðgjöf á staðnum um hvað til þarf og hvaða kostir eru hagstæðastir fyrir hvern og einn viðskiptavin.

Goddi
Auðbrekku 19
200 Kópavogur
Símar: 544-5550 / 822-4150
goddi@goddi.is
Goddi á Facebook

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum