fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Bíla-Doktorinn: „Herr Doktor, kalla þeir mig“

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 30. júní 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Skútuvogi 13 er bílavarahlutaverslunin og bílaverkstæðið Bíla-Doktorinn staðsett. Það sinnir almennum bílaviðgerðum og er á sama tíma einnig smurstöð. Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og eigandi Bíla-Doktorsins, segir fyrirtækið þjónusta mest Mercedes-Benz, Volkswagen, Audi og Skoda með viðgerðum og varahlutasölu, en þeir smyrji og geri við fjölda annarra bílategunda.

Áhersla lögð á gæðavörur

„Varahlutaverslun okkar hefur upp á að bjóða marga af algengustu varahlutum og einnig ýmsa sérvöru fyrir fyrrnefndar tegundir. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á gæðavörur sem uppfylla ströngustu kröfur bifreiðaeigenda og eftirlitsaðila í Þýskalandi, þaðan sem megin uppistaða af okkar vöru kemur,“ segir Rúnar.

„Varahlutaverslunin leggur áherslu á að nota öflug upplýsingakerfi til að gera afgreiðslu varahluta eins nákvæma og rétta og mögulegt er,“ bætir hann við.

Þekktir fyrir vönduð vinnubrögð

Bíla-Doktorinn er ört vaxandi fyrirtæki sem á stóran hóp tryggra viðskiptavina sem margir hverjir hafa átt farsæl viðskipti við verslunina frá upphafi. „Það er markmið okkar að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu byggða á þekkingu og langri reynslu á viðhaldi og umhirðu hvers kyns bifreiða,“ segir Rúnar. „Okkar aðalsmerki er vönduð vinnubrögð sem skila sér í betra umferðaröryggi og áreiðanleika þeirra ökutækja sem við sinnum viðgerðum á og seljum varahluti í,“ segir hann í framhaldinu.

Saga á bak við nafn fyrirtækisins

Nafn fyrirtækisins var dregið af viðurnefni Rúnars á meðal bílaáhugamanna. „„Herr doktor“, kalla þeir mig,“ segir Rúnar. Hann hefur unnið nærri alla sína starfsævi við bíla og vinnuvélar og er einn þekktasti áhugamaður um Mercedes-Benz-bíla á Íslandi en hann hefur haft það að áhugamáli að gera upp og varðveita fornbifreiðar af þeirri gerð, ásamt því að eiga einn bíl úr hópi þeirra elstu hér á landi, Chevrolet árgerð 1931.

Bjóða upp á almennar bílaviðgerðir

„Við bjóðum upp á flestallar almennar bílaviðgerðir,“ segir Rúnar. „Öll umskipti á slithlutum og lagfæringar á biluðu gangverki er eitthvað sem er okkar daglega starf. Þó svo að við bjóðum flestar gerðir bíla velkomnar í viðgerð þá höfum við að mestu leyti sérhæft okkur í Mercedes-Benz, Volkswagen, Skoda og Audi eins og áður sagði og búum við því yfir nokkurri sérþekkingu á þeim,“ segir Rúnar.

Bíla-Doktorinn, Skútuvogi 13, 104 Reykjavík
Sími: 552-5757 Heimasíða

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum