fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
FókusKynning

Fjölskrúðug fjölskylduhátíð

Kynning

Írskir dagar á Akranesi 29. júní–2. júlí

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 27. júní 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lopapeysuballið, sandkastalakeppnin og götugrillið eru á meðal hápunkta hátíðarinnar Írskir dagar á Akranesi sem verður glæsilegri með hverju árinu sem líður. Mikið líf er í bænum meðan á hátíðinni stendur, höfðað er sterklega til fjölskyldufólks og brottfluttir Akurnesingar og vandamenn þeirra láta sjá sig í stórum hópum.

„Þetta byrjar á fimmtudeginum og þá kemur bókabíllinn Æringi á bókasafnið og grillveisla verður hjá Húsasmiðjunni. Síðan verður hjólarallý fyrir krakka 4 til 12 ára, en það er nýr dagskrárliður sem verslunin Model stendur fyrir. Um kvöldið eru síðan tónleikar víða um bæinn,“ segir Ella María Gunnardóttir, talsmaður hátíðarinnar.

Hápunktur föstudagsins að mati Ellu er götugrillið sem hefst kl. 18 og er á víð og dreif um bæinn. Fjölmargir bæjarbúar láta þá hendur standa fram úr ermum og halda hátíðargestum grillveislu. Á föstudeginum er jafnframt búið að koma fyrir leiktækjum í bænum. Um kvöldið eru síðan stórtónleikar á hafnarsvæðinu.

Hátíðin nær hámarki á laugardeginum: „Það er þéttpökkuð dagskrá frá morgni og fram á nótt. Um morguninn er opið golfmót. Klukkan hálftíu um morguninn er síðan hin fræga sandkastalakeppni sem klárlega er einn af hápunktum hátíðarinnar. Við þurftum að flýta henni aðeins núna vegna þess að komið verður háflóð um hádegi. Það er afskaplega vinsælt hjá fjölskyldum að taka þátt í þessu,“ segir Ella María.

Fjölbreytt dagskrá er á Akratorgi og önnur í kringum Byggðasafnið allan daginn.

Stórstjörnur spila á Lopapeysuballinu

Um kvöldið er síðan mikið um dýrðir, að sögn Ellu Maríu:
„Klukkan tíu um kvöldið hefst brekkusöngur sem hópurinn Club 71 stendur fyrir. Í þessum hópi er fólk fætt árið 1971 en Club 71 hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum og er handhafi Menningarverðlauna Akraness 2016. Eftir brekkusönginn gengur síðan öll strollan niður á Lopapeysuballið.“

Meðal þeirra sem leika fyrir dansi á Lopapeysuballinu eru Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar, Dimma, Páll Óskar, Síðan skein sól og Emmsjé Gauti.

Lopapeysuballið fer fram bæði inni og úti. „Inni í gamalli sementsskemmu er leikið fyrir dansi á einu sviði, í tjaldi úti er síðan annað svið og síðan er stórt afgirt svæði úti þar sem er veitingasala.“

Á sunnudeginum tekur hátíðin að róast en þá er vinsælt hjá foreldrum að fara með börn sín í Garðalund þar sem Norðurál býður upp leiksýninguna Ljóta andarungann sem Leikhópurinn Lotta flytur. Þar er kveikt á grillunum þannig að fólk getur smellt á grillin og hægt er að eiga virkilega notalega fjölskyldustund.

Frítt er inn á meirihluta viðburða á hátíðinni en selt er inn á Lopapeysuballið og það kostar í leiktæki. Tjaldsvæðið er mikið notað þessa daga og er eitt verð fyrir alla dagana.

Rauðhærðasti Íslendingurinn 2016: Helga Guðrún Jónsdóttir
Rauðhærðasti Íslendingurinn 2016: Helga Guðrún Jónsdóttir

Rauðhærðasti Íslendingurinn

Tengingin við Írland á Írskum dögum á Akranesi er skemmtileg en þar koma við sögu tvær keppnir. Annars vegar verður valinn rauðhærðasti Íslendingurinn og hins vegar verður valið best skreytta hús bæjarins. Verðlaun í báðum keppnum er flug fyrir tvo til Írlands í boði Gamanferða. Síðast en ekki síst ber að nefna stórfína þjóðlagasveit sem skipuð er hátt í 20 stúlkum sem allar spila írsk þjóðlög á fiðlur. Þær munu koma við í götugrillunum á föstudeginum og koma öllum í gírinn.

Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á Facebook-síðunni Írskir dagar á Akranesi og vefslóðinni akranes.is/is/dagatal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum