fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Óttar varpar ljósi á nýja ógn: „Hann gafst upp, missti kjark og trú á sjálfan sig og lagðist í rúmið“

Örmögnunarþunglyndi fer hratt vaxandi – Heilinn ekki gerður fyrir slíkt álag

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 24. júní 2017 20:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óttar Guðmundsson geðlæknir var á fundi fyrir skemmstu með skandinavískum geðlæknum. Viðfangsefnið var að ræða fyrirbæri sem kallast örmögnunarþunglyndi sem Óttar segir að fari hratt vaxandi.

Óttar segir frá þessu í pistli í Fréttablaðinu, en pistillinn ber yfirskriftina Ný ógn. En hvað er örmögnunarþunglyndi? Óttar segir:

„Lýsingin gæti verið þessi: Manneskja á aldrinum 30-60 ára í krefjandi starfi. Vinnan verður með tímanum æ flóknari og kröfurnar um alls kyns tæknikunnáttu æ meiri. Fólk verður að tileinka sér tækninýjungar sem smám saman verða yfirþyrmandi. Kröfurnar í einkalífinu aukast að sama skapi. Skutla þarf heimilisfólki í alls konar tómstundastarf og sjá um heimilisstörf, eldamennsku, þvott og bílinn. Og ekki þarf að fjölyrða um það að samlíf hjóna versnar eftir því sem álagið eykst. Heimilið breytist smám saman í fyrirtæki sem verður að halda gangandi og sjá til þess að allir standist kröfur skólans, vinnunnar og einkalífsins. Þessu fylgja ótrúlegar nýjungar í samskiptatækni svo að allir séu alltaf ínáanlegir. Símarnir gelta stanslaust með nýjar kröfur, nýjar myndir og skilaboð. Hraðinn eykst.“

Óttar heldur áfram og segir að loks komi að því að viðkomandi gefst upp enda sé mannsheilinn ekki gerður fyrir slíkt álag.

„Skyndilega var eins og viðkomandi keyrði á fullri ferð á vegg. Hann gafst upp, missti kjark og trú á sjálfan sig og lagðist í rúmið. Mannsheilinn var hreinlega ekki hannaður fyrir þetta álag. Hann gat ekki sinnt öllum verkefnum samtímis. Tæknin hafði tekið öll völd og gert lífið óviðráðanlegt.“

Óttar segir að þetta minni að nokkru leyti á Glám í Grettis sögu þar sem vinnumaðurinn tók smám saman öll völd á heimili húsbænda sinna og reið húsum fúll á svip.

„Það varð Gretti dýrkeypt að sigra drauginn enda týndi hann sjálfum sér. Menn eru jafn ráðalausir gagnvart þessum Glámi nútímans. Maðurinn á enga aðra kosti en gangast draugnum á vald með ófyrirsjáanlegum afleiðingum eða hætta að láta tæknina stjórna lífi sínu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum