fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Gæðastundir í veiðiferðum með Benelli

Kynning

Ítalska listasmíðin Benelli fagnar 50 ára afmæli

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 26. maí 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Benelli fagnar 50 ára afmæli á þessu ári og hefur verið leiðandi á íslenskum markaði í hálfsjálfvirkum haglabyssum í 20 ár. Þetta merki er þekkt fyrir áreiðanleika, gæði og nýjungar í hönnun. Þetta er sannkallað toppklassa verkfæri í veiðiskapinn,“ segir Kjartan Lorange hjá Veiðihúsinu Sakka og á þar við ítölsku Benelli-línuna í haglabyssum. Fyrirtækið var stofnsett árið 1967 en stofnendurnir, Benelli-bræður, voru framleiðendur hinna vinsælu Benelli-mótorhjóla frá árinu 1940. Áhugi bræðranna á veiðum leiddi á endanum til þróunar Benelli-haglabyssunnar.

Benelli hefur verið leiðandi merki í hálfsjálfvirkum haglabyssum og saga línunnar hefur einkennst af stöðugri vöruþróun, nýjungum og gæðaumbótum. Nánar má fræðast um sögu Benelli-haglabyssunnar hér.

Kjartan Lorange heldur áfram:
„Þetta er ítölsk listasmíð sem til er í yfir 190 útfærslum, byssur sem henta smekk hvers og eins. Fimmtíu ára hnökralaus saga er nokkuð sem öll fyrirtæki yrðu stolt af. Benelli er orðið markaðsráðandi í heiminum þegar kemur að hálfsjálfvirkum haglabyssum, en enginn annar framleiðandi getur boðið upp á meira úrval og jafnmikið notagildi.“
Í tilefni afmælisins er í boði sérstök útgáfa af Benelli-byssunum sem aðeins er til í takmörkuðu upplagi – Raffaello Limited Edition 50.

Kjartan leiðbeinir á konukvöldi á vegum Veiðihússins og Skotvís.
Kjartan leiðbeinir á konukvöldi á vegum Veiðihússins og Skotvís.

Kjartan bendir á að hlutdeild kvenna í skotveiði og skotfimi sé mjög að aukast en Benelli býður upp á margar byssur sem henta konum eða lágvöxnum og léttum skyttum. Annars vegar eru byssur fyrir smágerðara fólki minni og hins vegar tekur lögun Benelli-byssanna mið af líkamsvexti.

Sem fyrr segir hefur Veiðihúsið Sakka átt í löngu og gæfuríku samstarfi við Benelli. Eigandi Veiðihússins Sakka og starfsmenn fyrirtækisins eru allir miklir veiðimenn en fyrirtækið hefur þá stefnu að selja eingöngu þann búnað sem þeir sjálfir treysta og geta hugsað sér að nota við veiðar.

„Veiðihúsið býður einnig upp á algjörlega skothelda (!) ábyrgð sem er fimm ár og verði byssa á einhverjum tímapunkti ábyrgðartímans ónothæf vegna bilunar eða galla sem kemur upp og ekki er unnt að leysa málið undir eins, þá útvegum við eigandanum byssu til afnota á meðan gert er við viðkomandi tæki. Við sjáum um alla þjónustu og erum með verkstæði sem Benelli hefur vottað, því þjónustuþátturinn skiptir okkur miklu máli, að þjónustan sé framúrskarandi,“ segir Kjartan og bætir við: „Veiði snýst um gæðastundir, við viljum aðstoða okkar viðskiptavini við að auka þau gæði og fyrirbyggja að þessar stundir spillist með nokkrum hætti.“

Þess má til gamans geta að Veiðihúsið Sakka er að seinni hluta nafnsins nefnd í höfuð veiðihunds sem núverandi eigandi heildverslunarinnar átti, en hundurinn hét Sakka.

Skotveiði er fyrst og fremst útivist – en villibráð er besta og heilnæmasta kjöt sem völ er á

Kjartan minnir á að skotveiði snúist fyrst og fremst um útivist. Veiðiferð geti staðið yfir í nokkra daga en af þeim tíma fari bara örfáar mínútur í að skjóta af byssu. „En lokatakmarkið er vissulega að fella bráð, draga björg í bú. Nútímamaðurinn þarf vissulega ekki að veiða sér til matar til að komast af en það er engu að síður afar eftirsóknarvert að komast yfir villibráð enda er hún besta og heilnæmasta kjöt sem nokkur maður getur látið ofan í sig. Hvað er betra en að bjóða góðum gestum upp á villibráð í lok veiðiferðar eða gefa hana vinum og ættingjum í veislumatinn? Í þessu eru gríðarleg verðmæti fólgin. Síðast en ekki síst uppfyllir maðurinn ákveðna frumþörf sem í honum er þegar hann fellir villibráð.“ Að veiða í íslenskri náttúru er mannbætandi og gott fyrir líkama og sál.

Veiðihúsið Sakka er heildverslun með fjölbreyttan veiðibúnað, til húsa að Hólmaslóð 4, 101 Reykjavík. Símanúmer er 562-0095 og netfang er kjartan@vos.is. Heimasíða er veidihusid.is.

Benelli-haglabyssurnar eru til sölu í öllum helstu veiðiverslunum landsins en sölustaðirnir eru eftirtaldir: Vesturröst, Veiðihornið, Hlað Húsavík, Veiðiríkið Akureyri, Veiðiflugan Reyðarfirði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum