fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Hártíska sumarsins og heiðursgestir frá Ástralíu

Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir bauð á hársýningu:

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 20. maí 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavík Warehouse og Eleven Australia héldu nýlega hársýningu í Gamla bíói þar sem sýnt var allt það nýjasta sem er að gerast í hártískunni í klippingu, litum og greiðslum, fyrir konur og karla.

„Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum sýningu af þessu tagi,“ segir Drífa Björk, sem er eigandi Reykjavík Warehouse, sem flytur inn áströlsku hárvörurnar frá Eleven. „Viðbrögð gesta eftir sýninguna eru þau að gestum fannst við hafa tekið hlutina upp á nýtt „level“.

Gott teymi sem miðlar áfram

„Við erum með öflugt og gott teymi sem heitir Reykjavík Warehouse Education Team og í því er samansafn af góðu fagfólki, fagfólki sem okkur finnst skera sig úr og við bjóðum þeim að vera með í teyminu,“ segir Drífa. „Við sendum síðan fulltrúa okkar, einn eða fleiri, út á land til að standa að vinnusmiðju og höldum hana þá fyrir nokkrar hárgreiðslustofur í einu. Við höfum þá jafnvel hvatt stofurnar til að vera með „erfið“ módel, einstaklinga sem eiga við einhver hárvandamál að etja eða þurfa á góðri meðferð að halda. Við höfum orðið vör við að margt fagfólk í greininni er ekki nógu duglegt að endurmennta sig og jafnvel fast í einhverri tækni og erum því dugleg að sinna landsbyggðinni og höldum námskeið reglulega þar sem fulltrúi frá okkur kynnir háraliti, merki og kennir nýjustu tækni og klippingar. Einnig höfum við sent fulltrúa til útlanda á námskeið eða í vinnusmiðjur og síðan kemur hann heim og heldur námskeið og miðlar til okkar hinna. Að auki höfum við fengið erlenda gesti hingað til lands til að halda námskeið fyrir okkur.“

Auður Haralds, eigandi Traffic,  Jóhann Eymundsson, sölustjóri Reykjavík Warehouse og Ambassador Eleven á Íslandi og hárgreiðslumaður á Reykjavík Hair, og Þobbi, eigandi Reykjavík Hair, sýna hér upp á sviði. Þau eru öll hluti af teymi fagfólks hjá Reykjavík Warehouse.
Þrír fagmenn á sviði Auður Haralds, eigandi Traffic, Jóhann Eymundsson, sölustjóri Reykjavík Warehouse og Ambassador Eleven á Íslandi og hárgreiðslumaður á Reykjavík Hair, og Þobbi, eigandi Reykjavík Hair, sýna hér upp á sviði. Þau eru öll hluti af teymi fagfólks hjá Reykjavík Warehouse.

Fjöldi gesta frá Ástralíu

Alls komu 11 gestir frá Ástralíu til að vera viðstaddir sýninguna og meðal þeirra voru heiðursgestirnir Joey Scandizzo og Andrew O’Tool stofnendur og eigendur Eleven Australia. Reykjavík Warehouse var fyrsti heildsalinn fyrir utan Ástralíu til að taka vörurnar í sölu og hafa þær verið til sölu hér á landi í tvö ár. „Þetta var stór og mikil sýning, 30 manns sem komu að henni og 30 módel, auk erlendu gestanna sem komu. Við stefnum á að hafa svona hársýningu árlega, en til að hún virki vel og skili árangri, þá verður fagfólk að mæta,“ segir Drífa.

Peter Mcdonald er stærsti hluthafi Eleven og með mikla reynslu í bransanum.
Aðalmaðurinn Peter Mcdonald er stærsti hluthafi Eleven og með mikla reynslu í bransanum.

Eleven verður til

Það var í nóvember 2011 sem fyrsta varan frá Eleven, Miracle Hair Treatment, kom á markað í Ástralíu, í henni er allt sem hárið þarf í einum brúsa: sólar-, hita- og rakavörn, þannig að hún er eins og „primer“ fyrir hárið. Síðan þá hefur merkið og vöruúrvalið stækkað hratt og fást vörurnar nú um allan heim og er merkið það hárvörumerki sem vex hraðast í heiminum. „Það er hvergi eins strangt gæðaeftirlit og í Ástralíu og Joey og Andrew eru báðir mjög virtir og þekktir,“ segir Drífa. „Einhvern tímann áttu þeir félagar spjall saman og Joey, sem rekur margar hárgreiðslustofur og er með 130 fagmenn í vinnu, sagðist vera orðinn leiður á því hvað merki væru flókin og of mikill tími færi í að útskýra fyrir viðskiptavininum hvernig varan virkar og kenna fagfólkinu að umgangast vöruna og nota.“ Þeir voru sammála um að á markaðinn vantaði vöru sem væri, einföld gæðavara, á góðu verði og sem virkaði. Þannig varð Eleven til. Og er varan þróuð og prófuð af fagfólki áður en hún fer á markað.

Atli plötusnúður (DJ Atli) sá um góða tónlist á sýningunni.
Með taktinn á hreinu Atli plötusnúður (DJ Atli) sá um góða tónlist á sýningunni.
Joey var valinn hárgreiðslumeistari ársins þrjú ár í röð í Ástralíu. Á meðal viðskiptavina hans eru Beyoncé, Kardashian-systurnar, Mel Gibson, Selena Gomez og Ronaldo. Hann sér einnig um hárið í þáttunum Australia's Next Top Model. Andrew er frægasti tískuljósmyndari í heimi, var valinn ljósmyndari ársins í Ástralíu og hefur unnið fyrir flest þekktustu tísku- og hármerki í heimi. Félagarnir stoppuðu í viku á Íslandi, fóru hringinn í kringum landið og versluðu meðal annars í Cintamani. „Þetta eru góðir og auðmjúkir strákar,“ segir Drífa.
Félagarnir Joey og Andrew Joey var valinn hárgreiðslumeistari ársins þrjú ár í röð í Ástralíu. Á meðal viðskiptavina hans eru Beyoncé, Kardashian-systurnar, Mel Gibson, Selena Gomez og Ronaldo. Hann sér einnig um hárið í þáttunum Australia's Next Top Model. Andrew er frægasti tískuljósmyndari í heimi, var valinn ljósmyndari ársins í Ástralíu og hefur unnið fyrir flest þekktustu tísku- og hármerki í heimi. Félagarnir stoppuðu í viku á Íslandi, fóru hringinn í kringum landið og versluðu meðal annars í Cintamani. „Þetta eru góðir og auðmjúkir strákar,“ segir Drífa.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum