fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
FókusKynning

Hefur öðlast þor og sjálfstraust til að hrinda hugmyndum í framkvæmd og láta draumana rætast

Kynning

Dagur Lárusson ræðir um breytingar á lífi sínu eftir Dale Carnegie-námskeið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 19. maí 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er ótrúlega algengt að fólk láti ótta og áhyggjur af áliti annarra koma í veg fyrir að það geri alvöru úr áformum sínum og draumum. Það getur gilt um hversdagsleg verkefni sem maður ákveður að sleppa en líka stóru draumana sem maður þorir aldrei að reyna að láta rætast. Á námskeiðunum hjá Dale Carnegie losnaði ég við þennan ótta. Og alltaf þegar ég fæ smá í magann, fyllist stressi, þá læt ég samt til skarar skríða.“

Þetta segir Dagur Lárusson, 22 ára gamall stjórnmálafræðinemi við HÍ með meiru, en hann kynntist Dale Carnegie árið 2014 er hann sótti námskeið fyrir ungt fólk (á aldrinum 16–19) og fór í kjölfarið í gegnum mörg slík námskeið sem aðstoðarmaður þjálfara.

Markmið námskeiðsins er aukið sjálfstraust, bætt samskiptafærni, auknir tjáningarhæfileikar, meiri leiðtogahæfileikar og jákvæðara viðhorf. Það verður ljóst af spjalli við Dag að hann hefur öðlast allt þetta á ótrúlega stuttum tíma – en vissulega hefur hann lagt hart að sér líka.

„Eftir námskeiðið fór ég að gera hluti sem mig hafði alltaf langað til að gera en ekki þorað. Mig hafði til dæmis alltaf dreymt um að taka þátt í ræðukeppninni Morfís en þorði ekki að fara í prufu. Skömmu eftir námskeiðið fór ég í prufu og flaug inni í ræðuliðið! Þetta er gott dæmi um hvernig þessi námskeið auka sjálfstraustið og gera mann færan til að gera hluti sem maður þorði ekki áður.“

Dagur Lárusson er núna kominn í sumarstarf sem fréttamaður á hinum þekkta knattspyrnuvef fotbolti.net en þar skrifar hann fréttir og tekur viðtöl við leikmenn og þjálfara, oft myndviðtöl. Þá rekur hann í samvinnu við félaga sinn Enski.net á Facebook sem hann stefnir á að breyta í venjulegan vef í framtíðinni. Uppistaðan í efninu eru myndskeið þar sem þeir félagar ræða um enska boltann. Er það stórt skref fyrir Dag að koma fram fyrir framan myndavél, nokkuð sem honum áður þótti mjög óþægilegt.

Jákvætt viðhorf – bætt samskiptafærni – vinátta

Eitt af því sem unnið er með á námskeiðinu er að minnka streitu og auka jákvætt viðhorf. „Ég var þessi neikvæða týpa en á námskeiðinu lærði ég margar aðferðir til að breyta neikvæðu viðhorfi í jákvætt, til dæmis hugsa: Hvað er það versta sem gæti gerst? Og vinn mig síðan í huganum út úr þeim vanda. Oftast kemur líka í ljós þegar maður hugsar málin betur að það mun ekkert hræðilegt gerast.“

Velgengni okkar og hamingja í lífinu ræðst töluvert af því hvernig okkur tekst upp í mannlegum samskiptum. Dagur segir að samskiptafærni sín hafi eflst mikið í gegnum námskeiðin og kemur með skemmtilegan flöt á það efni:
„Besta leiðin til að tryggja að fólk hafi góða reynslu af samskiptum við mann er að tala út frá áhugasviði viðmælandans. Það finnst öllum gaman að tala um sín áhugamál. Ef maður hittir til dæmis einhvern sem er flugmaður eða flugáhugamanneskja þá er bara einfalt að tala um flug við hann og viðkomandi finnst óskaplega gaman að tala við þig. Með því að beita þessari samskiptatækni lendir maður aldrei í vandræðalegum eða dauflegum samtölum og veit alltaf hvað maður á að segja. Það getur til dæmis komið sér vel í sumum fjölskylduboðum þegar maður hittir suma ættingja einu sinni á ári og getur haldið samtölunum gangandi. Ef þú talar við einhvern um áhugamál hans eða hennar þá talar viðkomandi endalaust – og mér finnst sjálfum gaman að tala um áhugamál annarra!“

Tjáningarhæfileikar Dags hafa líka eflst mikið við þátttöku á Dale Carnegie-námskeiðum enda ganga þau mikið út á að koma fram fyrir aðra. Annað sem hann hefur uppskorið í gegnum námskeiðin er gefandi vinasambönd:
„Vináttan á námskeiðunum kemur af sjálfu sér frekar en það sé sérstaklega lagt upp úr henni. Á hverju einasta námskeiði sem ég hef sótt hef ég eignast nýja vini sem ég er enn í sambandi við. Það er svo góð stemning á þessum námskeiðum og á millifundunum, en það eru tímar sem aðstoðarmenn sitja með ákveðnum hluta af hópnum til að undirbúa fyrir næsta tíma. Þarna myndast ótrúlega góð tengsl og vinasambönd og margir halda mjög fast í þessa vináttu.“

Dagur hefur á undanförnum tveimur og hálfu ári sinnt hlutverki aðstoðarmanns alls níu sinnum og segir hann það vera afar gefandi: „Maður nær svo nánum og góðum tengslum við þátttakendur. Það sem aðstoðarmaðurinn er svo heppinn að fá að gera er að hjálpa þátttakandanum að öðlast það sem hann sjálfur hefur öðlast á námskeiðunum. Að fá að hjálpa öðrum að ná þeim árangri sem maður hef náð er æðislega gaman og gefandi.“

Hvert námskeið stendur í átta vikur en inn í það er meðal annars ofin eftirfylgni: „Það er lögð áhersla á að við notum það sem við lærum á námskeiðinu í lífinu sjálfu. Á námskeiðinu lærum við efni sem við beitum síðan í lífinu.“

Markmiðasetningin er mikilvæg

Á Dale Carnegie-námskeiðum er lögð mikil áhersla á raunhæfa og góða markmiðasetningu. „Við setjum okkur smærri markmið og drögum upp framtíðarsýn. Með framtíðarsýninni sér maður sjálfan sig fyrir sér einhvers staðar í framtíðinni eftir tiltekinn tíma og talar eins og maður sé búinn að ná markmiðunum. Það er betra að setja sér nokkur lítil markmið til að komast að stóra markmiðinu,“ segir Dagur, en hver er þá hans framtíðarsýn?

„Ég stefni annars vegar að því að verða fjölmiðlamaður en hins vegar að því að verða Dale Carnegie-þjálfari en ég er að fara í það nám núna. Ég hlakka rosalega til og get varla beðið eftir því að þessi draumur rætist. Það var stór stund þegar mér var boðið að gerast Dale Carnegie-þjálfari, tækifæri sem ég gat ekki hugsað mér að sleppa. Það var líka eftirminnilegt þegar ég fékk æðstu viðurkenningu Dale Carnegie sem þátttakandi á námskeiði. Það var mér virkilega mikil hvatning til þess að standa mig vel áfram og ekki hika við að eltast við stóru draumana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum