fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Heilsa og útlit notar nýjustu tækni og vísindi

Kynning

Hlúa bæði að líkama og sál

Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 8. apríl 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snyrti- og heilsustofan Heilsa og útlit sérhæfir sig í því að hlúa bæði að líkama og sál með notkun nýjustu og framþróuðustu tækja og efna. Sandra Lárusdóttir, sem er menntaður einkaþjálfari, stofnaði fyrirtækið sumarið 2014 og hefur það á skömmum tíma náð að festa sig í sessi með sérhæfðum meðferðum sem bæta vellíðan, útlit og heilsu. „Okkar markmið er að kúnnanum líði sem best með sjálfan sig og að hann njóti sín í rólegu og afslappandi umhverfi hjá okkur. Það er svo bónus ef útlitið lagast líka,“ segir Sandra. Sandra er umboðsaðili fyrir heilsuvöruframleiðandann Weyergans, en þeir framleiða hágæðatæki fyrir hvers kyns sogæðameðferðir sem Sandra notar í meðferðum sínum hjá Heilsu og útliti. „Við sérhæfum okkur í sogæðameðferðum og ber öllum hér skylda til þess að læra á allar meðferðirnar. En einnig bjóðum við upp á aðrar meðferðir eins og húðmeðferðir, vax og fitufrystingu,” segir Sandra.

IONO-JET.
IONO-JET.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

IONO-JET súefnisvél fyrir húðina

Fyrsta vélin sem hægt er að nota í allt sem viðkemur húðinni!
Daglega verður húðin fyrir margs konar skaðlegum áhrifum í nútímasamfélagi, þar má telja upp mataræði, eðlilegt öldrunarferli og ýmsa umhverfisþætti sem setja öll mark sitt á húð okkar. IONO-Jet er einstök og víðfeðm súrefnismeðferð fyrir allsherjar húðfegrun og spornar gegn öldrunarmerkingu húðar. Þá er hægt að stilla vélina á fimm meðferðarleiðir, það er;

Eftir fimm skipti í IONO-JET.
Eftir fimm skipti í IONO-JET.

Djúphreinsun (e. Peeling) með áhrifaríkum ensímum
Húðlýsing á litablettum eða öldrunarflekkjum
Húðnæring fyrir húðina
Húðlyfting fyrir slappa húð
Húðafeitrun (e. Detox) sem gefur húðinni ljóma

Hægt er að vinna vel á hvers kyns bóluvandamálum og fílapenslum.

IONO-JET tækið er framleitt í Þýskalandi og er í stöðugri notkun hjá Weyergans-stofnuninni. Þessi nútímatækni er einstök og nýtist sérlega vel í meðferðum gegn hinum fjölmörgu húðvandamálum. Tæknin nýtist bæði í stök skipti til húðfegrunar og fyrir heilar kúrmeðferðir á erfiðari húðvandamál, þar sem teknir eru fleiri tímar með tækinu með reglulegu millibili. Eins má nýta meðferðirnar með tilliti til árstíðabundinna breytinga á húðinni. „Þær meðferðir sem IONO-JET býður upp á eru allar algjörlega sársauka- og skaðlausar og því er ekki nokkur hætta á að viðskiptavinur gangi út af stofunni okkar með rauða og sára húð. Þetta er eina vélin sem nota má til að skrúbba augnlokin, sem segir töluvert um hvað þetta er mikið undratæki,“ segir Sandra. Notast er við rafgas og mismunandi náttúruleg efni svo sem hreina plöntusterkju, ákveðin serum, amínósýrur, sérvalin vítamín og stofnfrumur sem öll eiga það sameiginlegt að hafa mjög afgerandi virkni í sjálfri húðmeðferðinni.

Vacu Sport.
Vacu Sport.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Vacu Sport byggir á geimvísindum

Hentar meðal annars íþróttamönnum og fólki með skert blóðflæði!
Þekkt er að eftir hvers kyns slys, meiðsli og aðgerðir, virki heilunar- og bataferli líkamans hægar en vanalega. Afleiðingar eftir slík áföll eru meðal annars aukin vökvasöfnun og bjúgmyndun. Æðakerfi líkamans er þá oft undirlagt í marga daga og algengt er að blóðrásar- og sogæðatruflanir geti jafnvel varað árum saman. En með tilkomu Vacu Sport vélarinnar frá Weyergans High Care er hægt að flýta bataferli líkamans svo um munar.
Tæknin var upphaflega þróuð til að koma í veg fyrir blóðrásarvandamál hjá geimförum sem vinna í þyngdarlausu umhverfi. Með Vacu Sport er hægt að minnka bjúgmyndun hratt og endanlega. Þar fer fram taktfast þrýstings- og lofttæmisnudd á æðakerfinu sem stóreykur blóðflæði í æðum og vöðvum þannig að svæði, sem hafa orðið fyrir meiðslum, jafna sig mun fyrr. Þannig fær líkaminn meira súrefni til sín og næringin skilar sér betur út í frumurnar. Meðferðin kemur þér mun fyrr í betra form og bætir heilsuna með því að hraða endurhæfingu og endurnýjun þeirra svæða sem þurfa á því að halda. Meðferðin hefur einnig sannað sig gegn langvarandi verkjum eins og gigt og liðavandamálum. „Fólk finnur töluverðan mun á sér í öllum líkamanum eftir að hafa fengið meðferð hjá okkur. Það má einnig minnast á að fjölmargir íþróttamenn nota Vacu Sport reglulega til að hjálpa líkamanum að jafna sig eftir íþróttameiðsl. Fótboltamaðurinn Ronaldo á til dæmis tvö svona tæki heima hjá sér og notar á hverjum degi. Einnig notar portúgalska landsliðið í fótbolta Vacu Sport tækið á leikmenn sína með góðum árangri. Úti í heimi meðhöndla sjúkraþjálfarar, læknar og aðrir meðferðaraðilar alls konar fólk, allt frá ungum íþróttamönnum til aldraðra einstaklinga með skert blóflæði, með Vacu Sport, enda eru áhrifin ótrúleg. Vacu Sport virkar svo einnig í baráttunni gegn appelsínuhúð,“ segir Sandra.

Súrefnishjálmur

Súrefnishjálmur. 100% náttúruleg meðferð.
Súrefnishjálmur. 100% náttúruleg meðferð.

„Ein af vinsælustu meðferðunum okkar er húðmeðhöndlun í súrefnishjálminum,“ segir Sandra. Um er að ræða einstaka meðferð sem er 100% náttúruleg og mjög fljótvirk. Í meðferðinni er unnið með oxun þar sem neikvæðar súrefnisjónir draga til sín súrefni í andrúmsloftinu. Orkan sem myndast við samrunann er leidd inn í höfuðhlífina sem virkar eins og oxunarhjúpur utan um andlitið. Þannig vinnur orkan sér leið inn undir húðina og örvar sellulósaskiptin sem eru nauðsynleg til að húðin geti gegnt sínu hlutverki sjálf, eins og uppbyggingu, hreinsun, viðhaldi, stinningu og styrkingu. Á meðan meðferðaraðilinn andar orkunni að sér í gegnum munn og nef, nýtist súrefnisflæðið einnig öllum líffærum og ekki síst heilanum. Þar sem engin aukaefni eru nýtt í meðferðinni er hún fullkomlega náttúruleg. Meðferðin er viðurkennd af þekktum húðmeðferðarstofnunum í Þýskalandi og hentar viðskiptavinum vel sem gera miklar kröfur til öldrunarmeðferða og vilja sjá skjótan árangur. Í mörgum tilfellum er árangurinn merkjanlegur strax eftir fyrsta tímann.

„Helga Möller, söngkona og flugfreyja, er í meðferðum hjá okkur. Helga vinnur á mjög óreglulegum tímum, bæði er hún að syngja seint á kvöldin og svo er hún í fluginu. Þessi vinnutími getur tekið á og þá sérstaklega Ameríkuflugið, þá finnur hún fyrir bjúgi og fótapirringi. Þá finnst henni sérstaklega gott að koma í Heilsu og útlit í Vacu Sport þrýstingstækið og henni líður líka alltaf vel eftir veru í súrefnishjálminum,“ segir Sandra.

Fleiri meðferðaraðilar úti um allt land

„Þess má geta að á Siglufirði er að finna heilsustofuna Weyergans Studio, þar sem boðið er upp á meðferðir með tækjunum sem við flytjum inn. Einnig notar Heilsu & Fegrunarstofa Huldu í Borgartúni tæki frá okkur. Svo veit ég til þess að það á að opna aðra stofu á Akureyri,“ segir Sandra.

Heilsa og útlit er staðsett að Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi.
Afgreiðslutími: Alla virka daga 09.00–18.00.
Hægt er að hafa samband með því að hringja í síma: 562-6969 eða senda tölvupóst á sandra@heilsaogutlit.is
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Heilsu og útlits og á Facebooksíðunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum