fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Heilbrigð hús ehf. – Sérfræðingar í raka- og mygluvandamálum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 3. apríl 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við vinnum mikið fyrir fyrirtæki og stofnanir þar sem þessi vandamál eru fyrir hendi og stúkum þá verksvæðið vel af og myndum undirþrýsting með blásurum, útbúnum Hepafilter, svo ekki berist ryk frá framkvæmdasvæðinu. Þannig getur starfsemi haldið áfram annars staðar í húsinu. Þetta gerum við einnig þegar við tökum að okkur almenn trésmíðaverk til að takmarka þrif eftir aðgerðir,“ segir Ágúst Bjarnason húsasmíðameistari en hann hefur sérhæft sig í úrlausn á raka- og mygluvandamálum í húsnæði undanfarin ár.

Sorpgámar þrifnir og innsiglaðir áður en farið er með þá út í gegnum sameign.
Sorpgámar þrifnir og innsiglaðir áður en farið er með þá út í gegnum sameign.

Ágúst rekur fyrirtækið Heilbrigð hús ehf. sem tekur að sér alla almenna smíðavinnu og sérhæfir sig í viðgerðum á húsnæði með raka- og mygluvandamál. Eins og Ágúst lýsir hér að framan leggur fyrirtækið mikið upp úr því að takmarka allt iðnaðarryk og hefur mikið unnið í fyrirtækjum og aðstæðum sem krefjast snyrtimennsku og góðrar umgengni.

Heilbrigð hús ehf. hefur starfað í tvö ár en Ágúst Bjarnason tók að sérhæfa sig í mygluvandamálum fyrir um fjórum árum. Hann hefur verið starfandi smiður í 12 ár. Hjá Heilbrigðum húsum eru 4–6 smiðir hverju sinni í fullu starfi.

Heilbrigð hús hafa yfir að ráða mikilli þekkingu á raka- og mygluvandamálum í húsum og hafa allan þann tækjabúnað sem þarf við hreinsun á myglusveppi í stóru og smáu húsnæði.

„Ég tel að mygluvandamál séu ekki mikið meiri núna en hér áður fyrr heldur er fólk orðið betur upplýst um vandamálið og áhrifin sem það getur haft á heilsu þess,“ segir Ágúst, en ljóst er af umræðu undanfarið að mjög mikil þörf er fyrir þjónustu manna eins og hans, sem hafa sérhæft sig í þessum vanda. Auk mygluviðgerða sinnir Heilbrigð hús ehf. almennu viðhaldi og trésmíði.

„Við sinnum almennu viðhaldi húsnæðis, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við erum hins vegar lítið í nýbyggingum þótt það sé á langtímaplaninu að byggja heilbrigð hús. Mygluvandamál og almennt viðhald tvinnast oft saman þar sem oft er ákveðið að ráðast í viðhald vegna leka, til dæmis leka frá gluggum, og þakviðgerðir. Í slíkum tilvikum kemur reynsla okkar að góðum notum,“ segir Ágúst.

Vinnusvæði stúkað af
Vinnusvæði stúkað af

Heilbrigð hús ehf. sinnir meðal annars eftirtöldum verkþáttum:

-Viðgerðir á húsnæði með raka- og mygluvandamál
-Frágangur og úttekt á rakavarnarlagi
-Timburhús
-Skjólveggir
-Uppsetning hurða
-Parketlögn
-Innréttingar
-Milliveggir
-Þakviðgerðir
-Utanhússklæðningar

Við íslenskar aðstæður getur verið nauðsynlegt að byggja yfir þök meðan á framkvæmdum stendur.
Við íslenskar aðstæður getur verið nauðsynlegt að byggja yfir þök meðan á framkvæmdum stendur.

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á endurmenntun og hafa starfsmenn þess sótt fjölmörg námskeið sem snúa að betri byggingum og meðhöndlun mygluvandamála í húsum hjá Iðunni fræðslusetri og Endurmenntun Háskóla Íslands.
Heilbrigð hús ehf. er aðili að Meistarafélagi iðnaðarmanna í Hafnarfirði, MIH.

Nánari upplýsingar um fyrirtækið veitir Ágúst Bjarnason húsasmíðameistari í tölvupósti gustismidur@gmail.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum