Verðlaunaleikur: 80’s kvikmyndagetraun
Í samstarfi við Smárabíó og Háskólabíó gefum við heppnum vinningshafa þriggja mánaða bíókort sem viðkomandi getur notað á allar sýningar í Smárabíó og Háskólabíó. Bíókortin eru frábær nýjung og skyldueign fyrir alla kvikmyndaunnendur.
Í getrauninni á að finna nöfn á 26 kvikmyndum sem þekktar eru frá níunda áratugnum eða 80’s tímabilinu. Á hverri mynd leynist nafn einnar kvikmyndar og er bókstafurinn fyrsti stafur í nafni hennar. Sem dæmi má nefna að A er An Officer and a Gentleman.
Lausnir berist á netfangið ragnage@simnet.is fyrir hádegi fimmtudaginn 4. maí næstkomandi.
Nafn vinningshafa mun verða birt í Séð og Heyrt sem fylgir DV föstudaginn 5. maí.
Smárabíó sem rúmar yfir 1.000 manns í sæti í fimm sölum er vinsælasta og fullkomnasta kvikmyndahús landsins og Háskólabíó er heimili kvikmyndahátíða og listrænna gæðamynda frá öllum heimshornum, hús með langa og góða bíósögu og sál.
Uppfært:
Búið er að draga
http://www.dv.is/lifsstill/2017/5/5/80s-kvikmyndagetraun-vinningshafi/