SkonRokk-tónleikarnir í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum
Deep Purple, Led Zeppelin, Queen, Metallica, U2, AC/DC og margir fleiri í flutningi söngvara á borð við Eyþór Inga og Magna Ásgeirsson. SkonRokk-tónleikarnir leiða okkur í gegnum sögu rokksins þar sem framúrskarandi íslenskir hljóðfæraleikarar og söngvarar túlka meistaraverkin. Um er að ræða þrenna tónleika sem verða í Valaskjálf Egilsstöðum 9. mars, Menningarhúsinu Hofi Akureyri þann 10. mars og í Eldborg Hörpu 11. mars.
Tónleikarnir eru ætlaðir öllum og tilvalið er fyrir þá hina eldri sem upplifðu árdaga rokksins að taka yngra fólk með sér. Stiklað er á stóru í rokksögunni, frá upphafi til dagsins í dag. Þeir sem standa að SkonRokk-hópnum lofa magnaðri upplifun fyrir alla rokkunnendur.
SkonRokkhópinn í dag skipa eftirtaldir tónlistarmenn:
Birgir Nielsen – trommur, Ingimundur Óskarsson – bassi, Stefán Örn Gunnlaugsson – hljómborð, Einar Þór Jóhannsson – gítar, Sigurgeir Sigmundsson – gítar, Ragnar Már Gunnarsson – gítar, Magni Ásgeirsson – söngur, Birgir Haraldsson – söngur, Eyþór Ingi Gunnlaugsson – söngur, Pétur Örn Guðmundsson – söngur, Stefán Jakobsson – söngur.
Og nú bætist nýr meðlimur í hópinn: Stefanía Svavarsdóttir – frábær söngkona sem litar sýninguna enn frekar.
Þetta er afskaplega þéttur og hæfileikaríkur hópur, ástríðufullir tónlistarmenn sem elska rokk og ætla að flytja meistaraverk rokksögunnar eftir hljómsveitir á borð við Deep Purple, Led Zeppelin, Whitesnake, Queen, Metallica, U2, KISS, AC/DC, CCR og fjölda annarra.