fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Hjá Dóra: Heimilismatur á góðu verði

Kynning

Allir réttir eldaðir á staðnum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 28. mars 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Þórhallsson matreiðslumaður hefur um árabil verið eitt af kennileitum Mjóddarinnar í Breiðholti þar sem hann hefur síðan 1996 rekið hina vinsælu matsölu Hjá Dóra. Hann gengur jafnan undir nafninu Dóri og er mönnum í hverfinu að góðu kunnur og jafnvel þótt út fyrir hverfið væri leitað!

„Hjá okkur ríkir notalegt andrúmsloft með allt að því heimilislegum blæ. Matsalan nýtur mikilla og stöðugra vinsælda enda vinn ég eingöngu með gott hráefni og legg áherslu á bragðgóðan mat fyrir hagstætt verð, en selt er eftir vigt og meðalverð á máltíð um 900–1.450 krónur,“ segir Dóri.

„Þótt hér í hádeginu verði oft myndarleg röð svangra viðskiptavina þá gengur þjónustan hratt og vel fyrir sig. Því hikar fólk ekki við að bíða smá stund þar sem það veit sem er; að maturinn er gómsætur og það bregst aldrei. Ég er líka með einvala starfslið sem hefur verið lengi hjá mér,“ upplýsir Dóri glaður í bragði.

Hamborgarhryggur og snitsel með tilheyrandi á föstudögum

Veitingamaðurinn bendir á að viðskiptavinirnir geti ávallt gengið að sex réttum vísum. „Hér er á hverjum degi djúpsteikt ýsa, kjúklingur, kjötbollur, steikt lambalæri, svínahryggur með puru og rifjasteik með puru. Við erum líka alltaf með tvo aðra rétti, sem eru mismunandi eftir dögum, t.d. lasanja, svínasnitsel og fiskibollur. Á föstudögum er ég oftast með hamborgarhrygg og snitsel með tilheyrandi,“ segir hann.

Allir réttir eldaðir á staðnum

„Allur matur er eldaður hér á staðnum. Í salnum eru sæti fyrir 35 manns og er margsetið við þau í hádeginu. Vinnuhópar og iðnaðarmenn borða hér í stórum stíl og einnig fólk úr fyrirtækjunum í kring auk þess sem ýmsir sem eiga erindi í Mjóddina koma við hjá okkur og fá sér gjarnan í svanginn. Þetta breytist aðeins þegar líður á daginn en á þeim tíma kemur fólk oft við og kaupir mat til þess að hafa með sér heim. Það er einmitt mikið um það á föstudögum þegar fólk er lúið eftir vinnuvikuna – þá finnst því gott að koma við hjá mér og kaupa tilbúinn, bragðgóðan rétt til að taka með sér heim, henda síðan bakkanum og byrja helgina.“

Dóri segir að algengt sé að eldri borgarar kaupi mat hjá honum og einnig þeir sem búa einir. „Fólk sér hagkvæmnina og tilbreytinguna í því að kaupa heitan, tilbúinn mat. Auk þess sem það sparar mörgum bæði fyrirhöfn og tíma,“ segir veitingamaðurinn vinsæli.

Hjá Dóra
Þönglabakki 1, Mjóddinni
Opnunartími er virka daga 11.30–13.30 og seinnipartinn frá 17.00–19.00

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum