fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Margverðlaunaður grafinn og reyktur lax

Kynning

Reykhúsið Reykhólum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 17. mars 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykhúsið Reykhólar hefur frá upphafi ákveðið að halda uppi kröfum um mikil gæði í framleiðslunni og halda bæði ferskleika og bragðgæðum. „Það gerum við með kaupum á íslenskum gæðalaxi frá laxeldisfyrirtækinu Arnarlaxi þar sem laxinn er alinn við bestu hugsanlegar aðstæður,“ segir Oddur Friðrik Vilmundarson, framkvæmdastjóri Reykhóla. „Með þessum ráðstöfunum þykir okkur við hafa getað uppfyllt kjörorð okkar, sem er og verður; gæði og gott bragð,“ segir Oddur.

Sérhæfðir í reyktum fiski

„Við sérhæfum okkur í reyktum og gröfnum laxi og öðrum bleikfiski en ákveðið var fyrir tveimur árum að einfalda vinnsluna með því að taka nánast út alla fersklaxsöluna og sérhæfa okkur í því sem við erum bestir í,“ segir Oddur.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

„Hjá okkur eru fimm stöðugildi í fullu starfi og veitir ekki af, því vinnsla okkar byggir á mikilli handavinnu, við handflökum laxinn, handsneiðum hann og notum ekki mikið vélar til verka. Á álagstíma er bætt við fólki eftir því sem þarf,“ segir Oddur. Reykti laxinn frá Reykhúsinu Reykhólum þykir einstaklega bragðgóður og fékk hann gullverðlaun árið 2014 í keppni MFK sem er haldin annað hvert ár og hlaut fyrirtækið silfurverðlaun fyrir graflaxinn. Árið 2016 fékk Reykhúsið gull fyrir grafinn lax og silfur fyrir reyktan lax.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Íslenskar matvöruverslanir og erlendur markaður

„Aðaláherslurnar okkar eru sala innanlands til matvöruverslana og hægt er að fá framleiðslu okkar víða eins og til dæmis í Krónunni, Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Melabúðinni, Nóatúni, Kjarvali og Kvosinni. Við dreifum líka til hótela, veitingastaða og í sælkeraverslunina Pure Food Hall í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það er alltaf þónokkur útflutningur hjá okkur og eykst hann á hverju ári, aðallega til Sviss, Spánar, Bretlands og Þýskalands,“ segir Oddur. „Við höfum verið með trygga viðskiptavini innanlands og erlendis í fjölda ára sem vilja fá okkar gæðavöru. Við bjóðum fyrst og fremst upp á gæði og gott bragð og hefur það skilað okkur sterkum viðskiptatengslum við viðskiptavini,“ bætir hann við.

Starfsemin byggð á mikilli þekkingu

Reykhúsið Reykhólar var stofnað í desember 2009 af Oddi Vilmundarsyni og Aðalsteini Finsen. Báðir hafa langa reynslu af vinnslu sjávarafurða. Drög að stofnun Reykhússins Reykhóla voru lögð á vormánuðum 2009, en stofnendur fyrirtækisins voru sammála um að rými væri fyrir gæðavöru á þessu sviði á markaði hérlendis sem og erlendis. Fenginn var ráðgjafi til liðs við Odd og Aðalstein sem kom sér vel þar sem viðkomandi hafði mjög mikla reynslu af framleiðslu og meðhöndlun á laxi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum