Karl úrsmiður, Austurvegi 11, Selfossi
Karl úrsmiður fagnaði 50 ára starfsafmæli fyrir þremur árum en fyrirtækið er síungt og þjónar fjölmörgum unnendum úra og annarra fallegra hluta. Margt hefur breyst í rekstrinum frá því fyrirtækið hóf starfsemi árið 1964, vöruúrval er fjölbreyttara og áhersla á úra- og klukkuviðgerðir hefur heldur minnkað. Þær eru þó enn mikilvægur þáttur í starfseminni og úrasala er enn mjög mikil.
Karl R. Guðmundsson fluttist 42 ára gamall frá Reykjavík til Selfoss en á þessum tíma var enginn starfandi úrsmiður á staðnum. Selfoss var þá mjög vaxandi bær og íbúar orðnir hátt í 2.000 talsins, en þetta var árið 1964. Sonur Karls, Bogi Karlsson, hefur starfað við fyrirtækið allt frá árinu 1965 en hann rekur það nú ásamt fjölskyldunni.
Á fyrstu árunum sátu þeir feðgar og gerðu við úr – og höfðu vart undan. Með tilkomu rafeindaúra og mikillar tollalækkunar á úrum hefur hins vegar dregið úr úraviðgerðum og úrasala aukist.
Verslunin Karl úrsmiður á Selfossi er ein stærsta úra- og skartgripaverslun landsins en hefur jafnframt aukið úrval annarrar gjafavöru á undanförnum árum. Þá er sala verðlaunagripa og áletrun jafnframt umfangsmikill hluti starfseminnar. Óhætt er að mæla með heimsókn í verslunina sem er afar glæsileg og rúmgóð, og starfsfólkið rómað fyrir góða og faglega þjónustu.
Bogi segir að úr séu klassísk eign og ekkert dragi úr því að fólk vilji eiga falleg úr. Hann segir úr núna vera aftur orðin tískugripir og ungt fólk vilji ekki síður ganga með úr. Þá er hlutverk úrsmiða einnig að gera við vegg- og skápklukkur. Þær klukkur detta líka aldrei úr tísku. Algengt sé að yngra fólk komi með slíkar klukkur sem það hefur eignast úr búi foreldra sinna eða ömmu og afa, og vilji gjarnan koma þeim í samt lag.
Skartgripir, úr og önnur gjafavara sem verslun Karls úrsmiðs býður til sölu eru allt vörur í fremstu röð. Gott er að skoða úrvalið á heimasíðu fyrirtækisins, kalliur.is. Verslunin sjálf er að Austurvegi 11, Selfossi, þar er opið virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 10 til 14. Símanúmer er 482-1433.
Sjá nánar á kalliur.is og Facebook/karlusmidur.