fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Líkamsrækt og slökun gegn millirifjagigt

Millirifjagigt getur verið af ýmsum toga

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 5. febrúar 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grein af doktor.is

Einkenni

Millirifjagigt getur verið af ýmsum toga en um er að ræða verki í síðu eða brjóstkassa sem versnar við djúpa öndun eða aðrar hreyfingar. Oftast er um að ræða festumein í festingum millirifjavöðva en festumein er bólga á staðnum þar sem sin festist við bein. Svipuð einkenni og við festumein geta einnig stafað af stirðleika í liðamótum þar sem rifbeinin tengjast hryggnum, við þursabit eða brjósklos í brjóst- eða hálshrygg. Einkennin koma oftar fram hjá kyrrsetufólki og gjarnan í vinstri síðu hjá rétthentum og er ástæðan sú að meiri hreyfing og liðleiki er á hægri hluta bolsins hjá rétthentum og myndast minni spenna og stirðleiki þeim megin.

Öndun er af tvennum toga, kviðöndun sem stjórnast af þindinni og brjóstöndun sem stjórnast af millirifjavöðvum. Við millirifjagigt getur brjóstöndun orðið svo sársaukafull að viðkomandi grípur til kviðöndunar eingöngu. Hægt er að villast á millirifjagigt og ýmsum öðrum verkjum og má þar nefna hjartaöng vegna kransæðasjúkdóms, vélindabakflæði eða aðra sjúkdóma í vélinda, gollurhúsbólgu og brjósthimnubólgu. Mikilvægt er að fá rétta sjúkdómsgreiningu til að hægt sé að beita viðeigandi meðferð. Ef um festumein eða stirðleika er að ræða getur hiti og nudd hjálpað. Stundum hjálpar að sprauta í verkjasvæðið.

Tengsl við vefjagigt

Eins og áður segir er festumein algengasta ástæðan fyrir millirifjagigt en um sömu eða náskyld fyrirbæri hafa verið notuð heitin vöðvabólga, vöðvagigt og upp á síðkastið er algengast að kalla þetta vefjagigt.

Vefjagigt

Vefjagigt (fibromyalgia) er náskyld síþreytu (chronic fatigue syndrome) og oft er erfitt að greina þar á milli. Um orsakir vefjagigtar og síþreytu er lítið vitað, sundum kemur þetta í kjölfar veikinda eins og veirusýkinga, stundum eru til staðar langvarandi truflanir á svefni og stundum byrjar þetta eftir slys. Sumir telja að vefjagigt og síþreyta séu bandvefjarsjúkdómar en aðrir að þetta sé af sálrænum toga.

Meðferð við vefjagigt

Þegar búið er að útiloka aðra sjúkdóma er fyrsta skrefið í meðferð að fræða sjúklinginn um sjúkdóminn, útskýra að ekki sé um hættulegan eða illkynja sjúkdóm að ræða, að þetta sé ekki tóm ímyndun og að margir aðrir séu haldnir þessum kvilla.

Meðferðin við vefjagigt er einstaklingsbundin og oftast þarf að prófa sig áfram til að finna það sem hentar hverjum og einum. Stundum þarf að taka á atriðum í lífi sjúklingsins eins og reykingum, óhóflegri áfengisneyslu, slæmum matarvenjum, miklu vinnuálagi og slæmum svefnvenjum. Þeim sem reykja getur batnað mikið við að hætta. Verkjalyf gagnast venjulega lítið en þunglyndislyf og jafnvel svefnlyf í stuttan tíma gera stundum verulegt gagn. Slökun er alltaf til góðs og nudd og hitameðferð geta oft gert gagn.

Rannsóknir hafa sýnt ótvírætt gagn af líkamsþjálfun hjá sjúklingum með vefjagigt eða síþreytu. Hæfileg líkamsþjálfun með það að markmiði að auka líkamlegt þrek er því lykilatriði í meðferð. Mikilvægt er að fara sér ekki of geyst því þá getur ástandið versnað. Gott er að byrja með sundi, léttum gönguferðum eða leikfimi og teygjuæfingum. Þetta þarf svo að auka hægt og rólega eins og hentar hverjum og einum. Langtímahorfur eru yfirleitt góðar og flestir geta losnað við óþægindin að miklu eða öllu leyti ef þeir fá viðeigandi meðferð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum