fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Háleynileg uppskrift

Kynning

BK Kjúklingur, ferskur matur fyrir alla í hádeginu

Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 3. febrúar 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

BK Kjúklingur er sívinsæll á meðal íslenskra matgæðinga enda er maturinn alveg einstaklega góður og ferskur. Kjötið er af íslenskum fuglum sem aldir eru hér á landi og kemur allt frá Matfugli. BK Kjúklingur kaupir eingöngu nýslátraðan kjúkling, aldrei frosinn og leggur þar að auki mikið upp úr ferskleika hráefnisins. Hjá BK Kjúklingi starfa í kringum 15 manns í fullri vinnu og í hlutastarfi. „Því náum við að anna þeirri gríðarlegu aðsókn sem er í kjúklinginn okkar,“ segir eigandinn, Haraldur Örn Hannesson, eða Halli eins og hann er yfirleitt kallaður.

Hollt er gott: Hálfur kjúklingur með sósu, grjónum, maís og salati.
Hollt er gott: Hálfur kjúklingur með sósu, grjónum, maís og salati.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hádegismaturinn

„Það er alltaf nóg að gera hjá okkur í hádeginu líkt og á kvöldin. Í hádeginu keyrum við mest á réttum sem við köllum Einstaklingstilboð, Hollt er gott og svo réttum með Mexíkóívafi. Við fáum bæði töluvert af viðskiptavinum sem borða á staðnum og svo koma hingað einstaklingar og fyrirtæki sem panta mat til að taka með. Einnig erum við með heimsendingarþjónustu í gegnum aha.is,“ segir Halli. Fyrir utan matseðilinn býður BK Kjúklingur upp á sérmatseðla fyrir íþróttahópa, skólaferðahópa og aðra stærri hópa. Þess má geta að BK Kjúklingur rekur einnig frábæra veislu- og grillþjónustu samhliða veitingastaðnum, sem hægt er að panta fyrir hvers kyns veislur, bæði úti og inni. BK Kjúklingur er með mat fyrir alla.

Einstaklingstilboð: Kjúklingasamloka. Þessi slær alltaf í gegn.
Einstaklingstilboð: Kjúklingasamloka. Þessi slær alltaf í gegn.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Einstaklingstilboð

Þar á meðal eru ýmsar girnilegar máltíðir eins og hálfur eða 1/4 kjúklingur, kjúklingabitar og ýmsar máltíðir í brauði svo sem borgarar, pítur og samlokur.

Mexíkóskir réttir

Við bjóðum upp á nokkra rétti sem eiga uppruna sinn í Mexíkó og eru þeir réttir gríðarlega vinsælir. Þar bjóðum við upp á Burritos, Quesedillas sem við fyllum með einhverju af eftirtöldu: Nautakjöti, kjúklingi og/eða grænmeti. Þessir réttir innihalda allir ferskt salat, hrísgrjón, sýrðan rjóma, guacamole og sódavatn. Einnig erum við með supernachos og nachos með ostasósu.

Hollt er gott: Girnilegt kjúklingasalat með fetaosti og ólífum.
Hollt er gott: Girnilegt kjúklingasalat með fetaosti og ólífum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hollt er gott

BK Kjúklingur er með þónokkrar hollar og girnilegar kjúklingamáltíðir á matseðlinum. Þar má nefna Tex Mex kjúklingamáltíð sem samanstendur af úrbeinuðum kjúklingalærum, brúnum hrísgrjónum, grilluðum tómati, salati og sósum. Öllum máltíðum sem nefndar eru „Hollt er gott“ fylgir ískaldur toppur að eigin vali.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Háleynileg uppskrift

BK Kjúklingur var stofnað árið 1994 og fyrir 16 árum tók Halli við rekstri staðarins. Hann er jafnframt þriðji eigandi staðarins. Aðspurður um hvað BK stendur fyrir segir hann að um sé að ræða tilbúið vörumerki og því miður viti hann ekki hvaðan hugmyndin að nafninu kom. En BK Kjúklingur stendur þó fyrir sínu með háleynilegri uppskrift að gómsætri kjúklingamaríneringu sem hefur fylgt staðnum frá upphafi og heldur betur slegið í gegn hjá íslenskum matgæðingum.

BK Kjúklingur er að Grensásvegi 5, 108 Reykjavík
Boðið er upp á heimsendingarþjónustu frá 11–22 alla daga.
Hægt er að panta mat í síma: 588-8585 eða í gegnum vefsíðuna aha.is
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu staðarins og á Facebook-síðunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum