fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Búð full af brosum

Kynning

Kastalinn, bráðskemmtileg hönnunarverslun á Selfossi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 24. febrúar 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kastalinn er án efa ein skemmtilegasta hönnunarbúð landsins með ógrynnin öll af íslenskri hönnun. Þegar Kastalinn varð eins árs í fyrra og hóf eigandinn, María Marko, að flytja inn vel valdar erlendar hönnunarvörur sem gleðja bæði augu og huga. „Verslunin er L-laga og annar anginn er alveg íslenskur á meðan hinn anginn er fullur af litaglaðri hollenskri hönnun sem vekur kátínu, jarðbundinni danskri vörulínu og bandarískum vörum með kolsvörtum húmor sem eru jafnframt vandaðar og úr góðum og efnum. Svo vekja frönsku ananaslamparnir alltaf athygli og aðdáun, enda bæði ótrúlega skemmtilegir og heillandi,“ segir María. Kastalinn býður upp á alþjóðlega hönnunarblöndu sem heillar fagurkerann í okkur öllum. María er menntaður vöruhönnuður og lærði einnig barnamenningarhönnun í Svíþjóð. Hún rekur hönnunarstúdíó í versluninni og hannar þar fallegar vörur sem hún selur.

Leikgleðin í fyrirrúmi

Það er alltaf jafn gaman kíkja í heimsókn í Kastalann hennar Maríu á Selfossi enda einkennist vöruúrvalið af vönduðum og skemmtilegum hönnunarvörum. „Heimili manns er kastalinn hans“, eru einkennisorð verslunarinnar og leitast María við að bjóða upp á fjölbreytta hönnun sem er hvort tveggja mjúk og hlý; og litrík og leikglöð. María opnaði einnig spánnýja og glæsilega vefverslun í nóvember í fyrra þar sem einnig er hægt að nálgast allar vörur Kastalans. „Þar má til dæmis panta fiskalampa frá Hollandi, notalegar danskar leirkrúsir, dulítið drungalega kertastjaka og íslensk plaköt með eyrnamörkum. Við erum líka með ótrúlega fín hvítvínsglös í nokkrum litum sem fallegt er að blanda saman. Þetta fæst allt hérna. Einn viðskiptavinur í sumar kvaddi okkur með orðunum: „A shop full of smiles!“ sem er einmitt það sem við viljum vera,“ segir María.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hönnunarbland í poka

Kastalinn grænmálaði er staðsettur á Selfossi, beint á móti hótelinu. „Við erum hægra megin við brúna þegar maður keyrir frá Reykjavík,” segir María. Þó má sannarlega segja að það sé fyllilega þess virði að taka á sig örlítinn krók úr alfaraleið til þess að kíkja í Kastalann, ganga aftur út með bros á vör og hönnunarbland í poka.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Kastalinn er staðsettur á Eyravegi 5, Selfossi.
Opið er í versluninni mán–fös 10–18 og lau 12–16.
Langi þig að kíkja við í Kastalanum utan opnunartíma er ekkert mál að hafa samband við Maríu og hún býður þér inn.
Sími: 663-3757, e-mail: postur@kastali.is

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Nánari upplýsingar má nálgast á vefverslun Kastalans; www.kastali.is og á Facebook-síðunni: Kastalinn. Einnig má fylgjast með versluninni á Snapchat undir nafninu: Kastalinn og á Instagram: Kastali.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum