fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Lítið Mál fyrir stór og lítil verk

Kynning

Málningarvinna, múrviðgerðir, gluggaviðgerðir, tilboðsgerð og margt fleira

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 2. febrúar 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lítið Mál ehf. er lítið málningar- og viðhaldsþjónustufyrirtæki í eigu Sigurðar H. Engilbertssonar, sem starfar á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið leggur áherslu á toppþjónustu og fagleg vinnubrögð sem uppfylla þarfir viðskiptavina. Til að tryggja góða endingu eru eingöngu notuð gæðaefni og þá helst íslensk framleiðsla, en einnig erlend ef svo ber undir.

Lítið Mál sinnir jafnt litlum breytingum sem stórum viðhaldsverkefnum. Fyrirtækið býður upp á alla almenna málningarþjónustu og gerir alhliða tilboð vegna viðhalds og endurnýjunar jafnt utanhúss sem innan. Þannig veitir Lítið Mál ehf. fullkomna þjónustu varðandi viðhald eigna, sinnir múrviðgerðum, sinnir gluggaviðgerðum, býður upp á ástandsmat eigna jafnt utanhúss sem innan, gerir útboðslýsingar vegna útboðs viðhaldsvinnu við fasteignir og margt fleira.

Í málningarvinnu og viðhaldsvinnu býr Lítið Mál að áratuga reynslu Sigurðar H. Engilbertssonar og löngu samstarfi hans við aðra verktaka og birgja. Fyrirtækið hefur skapað sér sérstöðu fyrir vönduð vinnubrögð sem tryggja endingu verka. Lítið Mál kappkostar að nota alltaf bestu fáanlegu efni sem til eru á markaðnum og bjóða upp á toppvinnu á samkeppnishæfu verði.

Fyrir og ...
Fyrir og …
... eftir
… eftir

Múrviðgerðir eru framkvæmdar í samræmi við ástandsmat, þannig að ástand húseignarinnar er metið og gerð tilboð í samræmi við það. Enn fremur tekur fyrirtækið að sér allsherjar viðhald á húsum, háþrýstiþvott, steypuviðgerðir, almennar húsaviðgerðir og margt fleira.

Lítið Mál tekur að sér tilboðsgerðir fyrir almenna málningarvinnu, múrviðgerðir, gluggaviðgerðir og ástandsmat að innan sem utan.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 896 5758 og upplýsingar eru einnig á vefsíðunni www.litidmal.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum