fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
FókusKynning

Ferðafélag Íslands í fararbroddi í 90 ár

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 2. febrúar 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ferðafélag Íslands var stofnað 1927 og hefur það markmið að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn á hálendinu og í óbyggðum og greiða fyrir götu ferðamanna á landinu. Þá gefur FÍ út bækur og kort og stendur fyrir fjölbreyttum ferðum um landið. Félagið á 40 skála og undir merkjum þess starfa 15 deildir úti um allt land. Ferðafélagið er í eðli sínu íhaldssamt og rótgróið og heldur fast í gömul og góð gildi. Um leið hefur það þó þróast í takt við tímann. Til dæmis var Ferðafélag barnanna stofnað fyrir nokkrum árum sem sérhæfir sig í ferðum fyrir börn og fjölskyldur og hefur fengið afar góðar móttökur og nú hefur Ferðafélagið stofnað FÍ ung sem er fyrir 18–26 ára. Þá hefur félagið verið í fararbroddi í ferðamennsku og byggt upp skála, gönguleiðir, göngubrýr og staðið fyrir fræðslu. Markmið félagsins eru í dag enn þau sömu og í upphafi; að greiða götu ferðamanna, byggja upp aðstöðu sem og standa fyrir ferðum, útgáfu og fræðslu. Stór þáttur í útgáfustarfi félagsins er útgáfa Árbókar Ferðafélagsins sem hefur komið út óslitið í 89 ár og er einstök ritröð um náttúru landsins.

Landmannalaugar eru einn fegursti staður hálendisins.
Landmannalaugar eru einn fegursti staður hálendisins.

Mikill fjöldi ferðamanna.

Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, segir að fjöldi ferðamanna hafi aukist jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár og að Ferðafélagið fari ekki varhluta af auknum fjölda ferðamanna. Eins hefur ferðum landsmanna innanlands fjölgað. „Tilgangur félagsins er að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn og greiða götu þeirra. Við einbeitum okkur að því að starfa fyrir félagsmenn og um leið að kynna landið og hvetja landsmenn til að ferðast um Ísland. Við verðum að hugsa um náttúruna og aðstöðuna, öryggi ferðamanna og upplifun og þurfum að vera viss um að ráða við þann fjölda ferðamanna sem um landið fer,“ segir Páll.

Fullbókað á Laugaveginum

Undanfarin 30–50 ár hefur Ferðafélagið unnið við að byggja upp aðstöðu víða um land, ekki síst á gönguleiðinni frá Landmannalaugum yfir í Þórsmörk, á svokölluðum Laugavegi. Nú ganga um 150 manns þessa leið á hverjum einasta degi frá miðjum júní, allan júlí og fram á haust. Allt að 85 prósent þeirra eru útlendingar, að sögn Páls. Margir þeirra bóka sig hjá ferðaskrifstofum en sumir koma á eigin vegum. Umferð þess hóps hefur aukist gríðarlega mikið á undanförnum árum.
Ferðafélagið á sex skála á Laugaveginum. Árið 2012 var Laugavegurinn tilnefndur sem ein af 10 bestu gönguleiðum í heiminum af National Geographic og segir Páll það hafa verið mikla viðurkenningu fyrir starf FÍ á leiðinni. „Þeir komu og tóku út gönguleiðina og skálasvæðin og tilnefndu leiðina í kjölfarið á þeirri úttekt. Þá komu Landmannalaugar best út allra ferðamannastaða á landinu í könnun Ferðamálastofu frá 2012 er varðar heildarupplifun ferðamannsins og sama má sjá í fleiri rannsóknum,“ segir Páll. Í dag koma 70.000 manns í Landmannalaugar yfir sumartímann. „Það komast bara ekki fleiri í skálapláss á Laugaveginum miðað við aðstöðu og nú er gott tækifæri til að beina fólki annað,“ segir hann. Páll segir að það séu margar aðrar skálaleiðir sem skemmtilegt sé að ganga og nefnir sem dæmi Lónsöræfi, Víknaslóðir, Öskjuveginn og Strútsstíg en á öllum þessum gönguleiðum er ágæt skálaaðstaða.

Áhættumat fyrir gönguleiðir

Ferðafélag Íslands hefur síðustu ár unnið að því að gera áhættumat fyrir gönguleiðir á landinu. „Við ætlum síðan að bjóða öllum í ferðaþjónustunni að nýta þessa vinnu okkar. Það er mikilvægur líður í öryggi ferðamanna að þekkja allar aðstæður vel og vita hvaða hættur geta verið á gönguleiðum,“ segir Páll.

Fegurð hálendis Íslands er einstök. Á Kili rekur FÍ þrjá fjallaskála.
Fegurð hálendis Íslands er einstök. Á Kili rekur FÍ þrjá fjallaskála.

Fyrsta skrefið, Alla leið og Tvö fjöll á mánuði

Segja má að Ferðafélagið sé sannarlega nútímalegt ferðafélag. Það er ekki einungis fyrir fullfríska klettaklifrara, heldur hefur félagið verið í samstarfi við Reykjalund og Háskóla Íslands með gönguferðir fyrir þá sem eiga erfitt um gang af einhverjum orsökum. Það getur verið vegna líkamlegra annmarka eins og offitu eða andlegra annmarka eins og þunglyndis o.s.frv. Rannsóknir, sem voru gerðar meðal þátttakenda þessara ferða, segir Páll að hafi komið mjög ánægjulega út. „Rannsóknir hafa margsýnt að gönguferðir eru mjög hollar fyrir bæði líkama og sál og sumir segja þær allra meina bót. Við viljum auka samstarfið við heilbrigðisyfirvöld og efna til gönguferða fyrir ákveðna hópa innan heilbrigðisgeirans. Nú er Ferðafélagið búið að stofna bakskólann og fór að stað með gönguverkefni fyrir fólk i yfirvigt. Þessi verkefni hafa nú sameinast í verkefni „Aftur af stað“ þar sem reynt er að koma fólki af stað í léttum gönguferðum með styrkjandi og liðkandi æfingum, þannig að þeir sem hafa gefið eftir heilsufarslega komist á beinu brautina aftur. Síðan eru hópar með geðraskanir, og rannsóknir hafa sýnt að gönguferðir hjálpa þeim geysilega mikið. Gönguferðir, hvort sem er um skóglendi eða við hafið, hafa mjög róandi áhrif. Að komast upp á fjall hefur t.d. mjög jákvæð áhrif á andlega líðan fólks. Allt eru þetta afrek og hjallar til að sigrast á og þessi verkefni eru liður í hjálpinni. Við fórum af stað með 52 verkefni FÍ fyrir nokkrum árum sem slógu í gegn og síðan hafa framhaldsverkefni og hliðarverkefni fengið að þróast með þátttakendum og eftir hugmyndum félagsmanna. Á síðastliðnum árum hafa fleiri þúsund manns tekið þátt í þessum verkefnum,“ segir Páll.

Ferðafélag Íslands er staðsett að Mörkinni 6, 108 Reykjavík.
Opnunartími er frá 10–17 alla virka daga.
Sími: 568-2533
Tölvupóstfang: fi@fi.is
Nánari upplýsingar um ferðir og fleira má nálgast á vefsíðu Ferðafélags Íslands og á Facebook-síðunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum