fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Frábært febrúartilboð á demantshúðslípun

Kynning

Abaco Heilsulind, Hrísalundi 1, 600 Akureyri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 11. febrúar 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Demantshúðslípunarmeðferð er frábær gjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um. Í tilefni af Valentínusardegi og konudegi býður Abaco Heilsulind á Akureyri frábært febrúartilboð á demantshúðslípun – hún kostar aðeins 9.990 krónur en venjulegt verð er 15.400 krónur.

Húðslípun er afar öflug og örugg húðmeðferð sem Abaco Heilsulind á Akureyri býður upp á. Meðferðin er framkvæmd með Silk Peel húðslípunartæki. Þetta er heildræn húðmeðferð þar sem ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra kristalla og demanta. Árangurinn er sléttari, mýkri og þéttari húð, auk þess sem áferð húðarinnar verður fallegri. Húðslípun er meðferð sem hentar fólki á öllum aldri og er örugg fyrir allar húðgerðir. Strax eftir fyrstu meðferð fær húðin ferskan blæ, verður þéttari, mýkri, hreinni og unglegri.

Þessi einstaka húðmeðferð lætur húðina líta betur út og endurheimta ljóma sinn. Dauðar húðfrumur eru fjarlægðar, blóðflæði örvað og vöxtur nýrra fruma og bandvefur örvast. Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Eldri húð sem farin er að þynnast styrkist og þéttist. Meðferðin veitir örugga hreinsun á yfirborði húðarinnar, dregur úr húðstíflum og opnar húðholur dragast saman. Sjáanlegur munur á húðinni er eftir hvert skipti og verða stöðugar framfarir á ástandi hennar.

Húðslípun vinnur meðal annars á eftirtöldum vandamálum:
Ótímabær öldrun
Fínar línur og hrukkur
Ör eftir skurði og bólur
Hörundslýti og húðþykkildi
Unglingabólur og óhrein húð
Exemhúð
Húðslit

Mælt er með að taka þrjár meðferðir með u.þ.b. tveggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir því vandamáli sem verið er að vinna á. Eitt skipti frískar verulega upp á húðina og gefur ljóma og gott útlit. Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt með að lágmarki sex meðferðum með tveggja til þriggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sama á við um meðferð við húðsliti.

Eftirmeðferð

Bera skal rakakrem á meðferðarsvæði og nota rakamaska fyrstu dagana eftir meðferð. Forðast ber sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá sólarhringa eftir meðferð. Forðast jafnframt sund og heita potta í a.m.k. þrjá sólarhringa. Sleppa skal líkamsrækt sama dag og meðferð á sér stað. Nota á SPF 30 sólarvörn eða sterkari í viku eftir meðferð.

Um Abaco Heilsulind

Abaco Heilsulind er staðsett að Hrísalundi 1 á Akureyri. Þetta er ein best búna heilsulind landsins, einstakur staður til að slaka á, endurnærast og njóta lífsins. Abaco býður viðskiptavinum sínum upp á herðanudd og kaldsteinanudd ofan í heitum potti. Steinanuddið er einstakt og mjög sérstök upplifun: Herðar, háls, bringa og andlit eru nudduð með köldum steinum, sem vekur mikla vellíðan. Þetta hentar fyrir pör og hópa. Einnig er boðið upp á andlitsmaska í pottinum.

Viðskiptavinir Abaco eru hvattir til að nýta sér aðgang að baðstofunni þegar komið er í nudd eða snyrtimeðferð, en aðgangur er innifalinn í öllum meðferðum.

Vínveitingaleyfi er á staðnum og gestir geta hresst sig á víni, bjór eða gosdrykkjum.

Í Abaco Heilsulind er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir, eins og litun og plokkun, hand- og fótsnyrtingu, vaxmeðferð, Guinot-andlitsmeðferðir og demantshúðslípun. Abaco Heilsulind er eina stofan á Akureyri sem býður upp á St.Tropez-brúnkumeðferð. Auk þess eru í boði lasermeðferðir til háreyðingar og til að vinna á háræðasliti. Enn fremur er til staðar frystipenni sem virkar á húðflipa og vörtur.

Boðið er upp á flestar tegundir af nuddi, eins og slökunarnudd, heilsunudd, íþróttanudd, ilmolíunudd og heit- og kaldsteinanudd. Einnig er í boði meðgöngunudd en á stofunni er sérstakur meðgöngubekkur.

Í Abaco starfa hjúkrunarfræðingur, snyrtifræðingar og nuddarar.
Í Abaco er auk þess glæsileg ljósastofa og eru fjórir Ergoline-ljósabekkir.
Hægt er að kaupa gjafabréf í Abaco Heilsulind og eru þau afar vinsæl gjöf.
Þá má geta þess að á staðnum er til sölu úrval húðsnyrtivara, meðal annars frá Guinot, Sothys, Alessandro, St. Tropez og margt fleira.

Síminn í Abaco Heilsulind er 462-3200 og netfangið er abaco@abaco.is. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni abaco.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum