fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
FókusKynning

Rómantísk og endurnærandi tilboð á Valentínusardaginn og konudaginn

Kynning

Heilsa og Spa, Ármúla 9

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 10. febrúar 2017 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gígja Þórðardóttir framkvæmdastjóri
Gígja Þórðardóttir framkvæmdastjóri

Í Ármúla 9 starfa nokkur fyrirtæki sem vinna saman að því að bjóða upp á fjölbreyttar heilsu- , vellíðunar- og fegrunarmeðferðir. Framundan eru rómantískir dagar, Valentínusardagurinn þriðjudaginn 14. febrúar og konudagurinn sem er sunnudaginn 19. febrúar, þar sem margir eru í leit að heppilegum gjafahugmyndum. Heilsa og Spa og snyrtistofan Fegurð og Spa bjóða upp á þrjá afar áhugaverða dekurpakka fyrir þessi tilefni sem gilda allan febrúar:

Dekurpakki fyrir tvo

Fyrir ástfangna, vinina, vinkonurnar, mæðgurnar, feðgana og bara hina og þessa.
50 mínútna endurnærandi heilnudd fyrir tvo í fallegu og afslöppuðu umhverfi.
Freyðivín og léttir réttir fyrir tvo inni í Spa-inu að nuddi loknu.
Dásamleg stund á frábæru verði.
Verð: 22.000 kr. fyrir parið.

Mynd: 123rf.com

Endurnærandi AHA „Eldur & ís“ andlitsmeðferð

Tilvalin til að lífga upp á þreytta húð.
Lífræn, hreinsandi og örvandi andlitsmeðferð sem fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar starfsemi húðarinnar. Kröftug meðferð og húðin virkar fyllri, glóandi og endurnærð.
Aðgangur að Spa-inu innifalinn.
Verð: 16.065 kr.

Sweet Cheeks jarðarberja- og rabarbaraandlitsmeðferð

Til að rakajafna „þyrsta“ húð.
Endurnýjandi og róandi meðferð fyrir þyrsta húð með náttúrulegum húðvörum. Húðin verður frískari og full af raka sem er dásamlegt á köldum vetrardögum.
Aðgangur að Spa-inu innifalinn.
Verð: 11.815 kr.

Heilsa og Spa og snyrtistofan Fegurð og Spa eru til húsa að Ármúla 9, Reykjavík.
Fylgist með á Facebook-síðum þeirra en nánari upplýsingar um tilboðin má einnig fá í síma 595-7007 og heilsaogspa@heilsaogspa.is

Þessi frábæri dekurpakki er í boði aðeins út febrúar. Vellíðundarnudd og ótrúleg upplifun:
Einstaklingsmiðað kerfi þar sem hver einstaklingur fær nákvæmlega það sem hann þarf til að ná jafnvægi, slökun og mýkt í líkamann. Hefst á „mindful massage“ og svo leiðir nuddarinn veginn, allt miðað við ástand líkamans þann dag sem nuddið fer fram. Hefðbundið djúpvöðvanudd, Thai-nudd og handtök sem gera kraftaverk á líkamanum.

Eingöngu hægt að kaupa þrjú eða fleiri skipti í einu. Innifalið er aðgangur að Spa-inu og tækjasal og nuddarinn gefur góð heilsuráð enda hjúkrunarfræðingur með meistarapróf í wellness og spa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum