fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Allt til alls í baðherbergið: Sturtuklefarnir slá endalaust í gegn

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 16. desember 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við seljum mikið af sturtuklefum og baðinnréttingum á þessum tíma því margir eru að innrétta hjá sér baðherbergin fyrir jól,“ segir Íris Jensen hjá versluninni Innréttingar og tæki, Ármúla 31.

Verslunin býður upp á fjölbreytt úrval af vönduðum hreinlætistækjum og innréttingum fyrir baðherbergi. Meðal þeirra eru sturtuklefar sem slógu rækilega í gegn um leið og þeir komu í verslunina og hafa síðan bara haldið áfram að rjúka út. „Við höfum aldrei tekið inn eins mikið af sturtuklefum og á þessu ári,“ segir Íris.

Það er greinilega vinsælt að endurnýja baðherbergi núna því Íris segir að mikil fjölgun hafi orðið á vörugámum til verslunarinnar á þessu ári. „Endurnýjunin er mikil og svo er verið að útbúa bílskúra og ýmsar aðrar vistarverur sem húsnæði til útleigu, það er verið að gera kjallaraíbúðir íbúðarhæfar og setja upp sturtur í þvottahúsum,“ segir Íris en þarna koma sturtuklefarnir alls staðar sterkir inn. Þeir eru smekklegir í útliti, sterklegir og afskapleg þægilegir í uppsetningu. Auk þess hafa þeir góða vatnseinangrun og gott er að þrífa það.

„Þessi klefar eru orðnir mjög þægilegir og það þarf ekki lengur að „kítta í kaf“ ef svo má að orði komast. Botninn er ekki lengur sléttur, það er komin uppbrík á hann sem heldur vatninu fyrir innan. Því eru klefarnir vatnsheldir án þess að þurfa að nota of mikið af kítti,“ segir Íris.

Það er líka mjög auðvelt að þrífa klefana:
„Það er mjög góður hjólabúnaður í rennihurðinni sem virkar þannig að það er hægt að taka hurðina af og þrífa hana almennilega. Í ferðaþjónustunni þarf að borga fólki laun fyrir þrif og það minnkar kostnað og dregur úr fyrirhöfninni þegar auðvelt er að þrífa klefana. Annað sem fólk kann vel að meta er að alltaf er hægt komast að vatnslásnum, rörum og búnaði, ef eitthvað kemur upp á, því botninn er á fótum með svuntu framan á sem hægt er að taka frá. Þannig er afar þægilegt að hreinsa burtu hár og þess háttar og iðnaðarmenn sem þurfa að komast að vatnslási og leiðslum kunna vel að meta þetta.“

Íris Jensen
Íris Jensen

Sturtuklefarnir eru til í stærðunum 70X70, 80X80 og 90X90. Hægt er að skoða sturtuklefana uppsetta í versluninni að Ármúla 31.

Baðinnréttingar og salerni seljast mikið í versluninni en innréttingarnar þykja mjög smekklegar í útliti auk þess sem þær veita töluvert mikið geymslurými. „Það er hægt að geyma meira á baðherberginu í þessum djúpu skúffum og það kann til dæmis barnafólk að meta,“ segir Íris.

Heimasíða verslunarinnar Innréttingar og tæki

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum