fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Settu gleðistund í jólapakkann

Kynning

Gjafakort í Þjóðleikhúsið er tilvalin jólagjöf

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 10. desember 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsókn að leiksýningum Þjóðleikhússins hefur verið með eindæmum góð á leikárinu og vinsælar sýningar verða áfram á fjölunum eftir áramót, auk þess sem nýjar og spennandi sýningar verða frumsýndar á næstunni. Gjafakort í Þjóðleikhúsið er því kærkomin jólagjöf fyrir marga en kortið er hægt að kaupa á vef Þjóðleikhússins, leikhusid.is, eða í afgreiðslunni á Hverfisgötu.

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu verkefni leikhússins í vetur:

Faðirinn – fimm stjörnu leiksýning

Franska verðlaunaverkið Faðirinn sló sannarlega í gegn þegar það var frumsýnt í október, í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Gagnrýnendur hafa ausið sýninguna lofi, ýmist gefið henni 4 eða 5 stjörnur, og meðal annars sagt: „Sýning sem enginn má missa af eða gengur út af ósnortinn“ og „undursamleg sýning sem fær mann til þess að hlæja og gráta“. Eggert Þorleifsson fer á kostum í sýningunni og sagði einn gagnrýnandi um hann: „Ég hef aldrei séð hann svona góðan.“ Það er meira og minna uppselt á sýninguna næstu mánuði, en til að mæta eftirspurn er búið að setja í sölu sýningar allt fram í febrúar.

„Stjörnuleikur hjá Eddu og Pálma“

Risaeðlurnar eftir Ragnar Bragason hafa sömuleiðis slegið í gegn á Stóra sviðinu, og áhorfendur hafa hlegið sig máttlausa sýningu eftir sýningu á þessu grátbroslega verki. Edda Björgvinsdóttir og Pálmi Gestsson fara með aðalhlutverk í sýningunni, og hefur þeim verið hrósað í hástert fyrir frammistöðu sína. Það er Þjóðleikhúsinu sérstakur fengur að því að fá Eddu Björgvins aftur til liðs við sig, og má með sanni segja að þessi gamalreynda og dáða leikkona sé hér í fantaformi! Risaeðlurnar eru nístandi gamanleikur, lokahluti leikhúsþríleiks Ragnars um afkima íslensks samfélags.

Kraftmikið fjölskyldudrama

Hafið er eitt vinsælasta leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar og verður nú jólasýning Þjóðleikhússins í nýrri og spennandi uppsetningu. Siggi Sigurjóns leikstýrir og Þröstur Leó Gunnarsson fer með hlutverk valdamikils útgerðarmanns í sjávarþorpi. Hafið er átakamikill fjölskylduharmleikur, þrunginn spennu, en líkt og önnur verk höfundar er það jafnframt fullt af beittum húmor. Meðal annarra leikara í aðalhlutverkum eru Guðrún S. Gísladóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir.

Margverðlaunað átakaverk

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir snýr aftur í Þjóðleikhúsið eftir áramót í hinu margverðlaunaða leikriti Efa, en þar leikur hún m.a. á móti Hilmi Snæ Guðnasyni í leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Efi er spennandi verk um mörkin í mannlegum samskiptum, tortryggni, grunsemdir og nístandi óvissu. Hvenær lætur fólk tortryggni stjórna sér? Hvenær lokar það augunum fyrir óhugnanlegum sannleika?

Nýr söngleikur með lagaperlum Stuðmanna

Glænýr og stórskemmtilegur íslenskur söngleikur eftir Góa, sem er byggður á ástsælustu lögum Stuðmanna, verður frumsýndur á Stóra sviðinu í febrúar. Bráðfyndin atburðarás, þar sem kostulegum persónum lendir saman, gömlum leyndarmálum er þyrlað upp í loft og ástin blómstrar óvænt þar sem síst skyldi. Meðal leikara og dansara eru Selma Björns, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Örn Árnason, Siggi Sigurjóns og Eggert Þorleifsson. Dans, söngur, gleði og fjör! Gleðisprengja er um það bil að springa á Stóra sviðinu!

Heillandi verk um baráttu ólíkra kvenna

Svartalogn er nýtt íslenskt verk sem frumsýnt verður á Stóra sviðinu í apríl, ný leikgerð eftir Melkorku Teklu Ólafsdóttur byggð á skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Svartalogn er hrífandi verk um höfnun og hindranir, baráttuna við niðurrifsöflin í mannssálinni – og óvæntu möguleikana í lífinu. Með aðalhlutverk fer Elva Ósk Ólafsdóttir, en stór leikhópur miðlar þessari mögnuðu sögu.

Þjóðleikhús barnanna

Í Þjóðleikhúsinu er fjölbreytt úrval leiksýninga fyrir börn á öllum aldri. Á Stóra sviðinu gengur hin eldfjöruga sýning Fjarskaland eftir Góa ennþá fyrir fullu húsi, og börnin geta fundið eitthvað skemmtilegt víða um hús, meðal annars á Brúðuloftinu og í Kúlunni. Eftir áramót verður meðal annars frumsýnd ljóðræn og skemmtileg leiksýning fyrir yngstu börnin, Ég get, en hún fjallar um það sem er mitt og þitt og okkar.

Fjölbreytt samstarfsverkefni

Þjóðleikhúsið er í samstarfi við ólíka leikhópa, Mið-Ísland, Improv Ísland og Elefant sem setti upp fjölmenningarverkið Smán. Einnig verður nýtt verk, Stríð, eftir Ragnar Kjartansson og Kjartan Sveinsson, sett upp í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Aðfaranótt, nýtt verðlaunaverk eftir Kristján Þórð Hrafnsson, verður sett upp í samstarfi við leikarabraut sviðslistadeildar LHÍ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum