fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Lúðvíksson er brautryðjandinn: Ódýrari í LED-ljósum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 13. október 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Lúðvíksson ehf. hefur getið sér orð fyrir mjög hagstætt verð á LED-ljósabúnaði en ástæðan fyrir lágu verði er ekki lágverðsinnkaup heldur lítil yfirbygging á fyrirtækinu og löng reynsla á markaðnum. Eigandinn, Guðmundur Lúðvíksson, hóf að kynna sér LED-lýsingu árið 2006 og fór á fullt inn á þennan vettvang árið 2012 en þá hafði varla nokkur maður á Íslandi heyrt talað um LED. „Menn voru að spyrja mig hvernig perur væru í LED en það eru engar perur í LED heldur eru það steinar sem gefa frá sér þessa gló sem lýsir,“ segir Guðmundur.

Guðmundur segist berast lítið á og forðast yfirbyggingu í rekstrinum: „Ég rek til dæmis ekki einkabíl og hef forðast að fara út í miklar fjárfestingar heldur kappkosta að láta neytendur njóta góðs af lágu verði. Auk þess byrjaði ég í þessu löngu á undan öðrum og náði hagstæðum samningum þegar enginn á Íslandi var á þessum markaði og Ísland var óplægður akur. Ég nýt góðs af því í dag í mínum innkaupum.“

LED-lýsing í Krossmóa
LED-lýsing í Krossmóa

Helstu viðskiptavinir Lúðvíksson ehf. eru rafverktakar, sveitarfélög, verslanir, hótel og önnur fyrirtæki. „Ég rek þetta sem eins konar heildsölu en ég vísa engum frá. Ef Jón Jónsson vill „ledda“ hjá sér heimilið þá spyr ég hann ekki hvort hann sé með einhvern rekstur enda kemur mér það ekki við,“ segir Guðmundur en færst hefur í vöxt að heimili séu LED-vædd og því fylgir mikill sparnaður: „Fólk er að setja LED-ljós undir þakskegg og inn á heimilið. Til dæmis venjuleg stofuljós. Kosturinn liggur fyrst og fremst í raforkusparnaði. Ef þú ert að greiða 10.000 krónur á mánuði í rafmagn vegna hefðbundinnar lýsingar þá getur sá kostnaður farið alveg niður í 800 krónur með LED-lýsingu.“

Guðmundur Lúðvíksson
Guðmundur Lúðvíksson

Það gefur augaleið að hagsmunirnir eru enn ríkari hjá fyrirtækjum sem yfirleitt eru með meiri raforkukostnað en heimili. Nefnir Guðmundur sem dæmi fiskvinnslufyrirtæki sem eru að keyra á lýsingu allt að 15 tíma á dag, þar séu mjög háar fjárhæðir sem geta sparast í raforkukostnaði.

Gríðarlegir hagsmunir fyrir sveitarfélög

Götulýsing eins og við þekkjum í dag er bæði orkufrek og hefur frekar slæma birtu í samanburði við LED-lýsingu. Það er því ekki aðeins verulegur ávinningur í sparnaði fyrir t.d. sveitarfélög/borgir og bæi að skipta yfir í LED-lýsingu. Það er líka gríðarlegt umferðaröryggi að hafa góða lýsingu í vegakerfinu. Reykjanesbær hefur m.a. verið framsækinn að í að LED-væða götulýsingu í bænum og nú þegar hefur nokkuð verið sett upp af þessum ljósum.

Fyrir og eftir LED-lýsingu á vegum Lúðvíksson ehf.
Fyrir og eftir LED-lýsingu á vegum Lúðvíksson ehf.

Að sögn Guðmundar er LED-væðingin bylting sem mun hafa mikil áhrif á líf okkar til góðs. Ljósin veita betri lýsingu og lækka mjög kostnað.

Fyrr og eftir LED-lýsingu á vegum Lúðvíksson ehf.
Fyrr og eftir LED-lýsingu á vegum Lúðvíksson ehf.

Nánari upplýsingar um starfsemina hjá Lúðvíksson er að fá á vefsíðunni ledljos.com og símanúmerin hjá fyrirtækinu eru 565-8911 og 867-8911.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum