fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Mállausi sjúklingurinn

Grátur er stundum eina vísbendingin – Sjúklingar eru misþægilegir

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. janúar 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sem læknir þá verður maður alla jafna að reiða sig á það að sjúklingurinn segi manni hvað það er sem hrjáir hann, hvar honum er illt, og hvers kyns einkennin eru. Það gefur vísbendingar um það í hverju vandinn liggur og þrengir verulega fjölda mismunagreininganna sem fljúga í gegnum hugann. Augljóst er að lýsingarnar geta verið mismunandi og það sem einum finnst vera verkur getur öðrum þótt vera óþægindi, kláði getur verið túlkaður sem sviði og þannig mætti lengi telja.

„Kemur að því á einhverjum tímapunkti að læknar geti stungið sjúklingi í samband við einhvers konar tölvu.“

Allt frá upphafi læknisfræði hefur það að taka sögu sjúklings verið aðalatriðið og þrátt fyrir alla heimsins tækni er erfitt að ímynda sér að það muni breytast. Í nútímanum er það þó svo að læknar og heilbrigðisstarfsfólk reiðir sig æ meir á rannsóknir af ýmsu tagi og treystir tækjum og tólum oft betur en frásögn og skoðun.

Sjúklingi stungið í samband

Það er auðvitað öfugsnúið að tæknin sem stuðningur sé farin að hafa jafn mikil áhrif á læknislistina og raun ber vitni, tímaskortur og aukið álag getur líka verið hluti af vandanum. Öllum er þó ljóst hversu mikilvæg tækni er og þróun nýrra aðferða í greiningu og meðferð hefur skilað okkur gífurlegum framförum á undanförnum áratugum. Þá er deginum ljósara að framhald verður á þessari þróun og mögulega kemur að því á einhverjum tímapunkti að læknar geti stungið sjúklingi í samband við einhvers konar tölvu sem spýtir út úr sér greiningu og tillögu að meðferð. Það mun breyta læknisstarfinu umtalsvert og ég er ekki viss um að það sé eins spennandi og það hljómar.

Ef til vill er þess ekki langt að bíða að hægt verði að stinga sjúklingi í samband.
Stungið í samband? Ef til vill er þess ekki langt að bíða að hægt verði að stinga sjúklingi í samband.

Mynd: 123rf.com

Mistökin gerast

Í dag eru gerðar miklar og vaxandi kröfur til fagfólks, ekki bara lækna, um að það viti hvað það er að fást við. Það er skiljanlegt, ég tala nú ekki um þegar hætta steðjar að lífi og limum viðkomandi sjúklings og ákvarðanir eru teknar með hraði og lítill tími gefst til umhugsunar. Mistök eiga sér stað í læknisþjónustu líkt og í annarri þjónustu, en það er lítið svigrúm fyrir slíkt og sömuleiðis lítið umburðarlyndi að teknu tilliti til viðfangsefnisins. Það má hins vegar ekki koma í veg fyrir að um það sé rætt, það tilkynnt og unnið fyrir opnum tjöldum eða notað til að betrumbæta þjálfun, færni og skilning.

Góð samskipti eru þarna lykilatriði og oft eru það smáatriðin sem skipta mestu máli, tæki og tól gagnast þarna iðulega lítið.

Sérfróðir sjúklingar

Það er hægt að flokka sjúklinga niður í mismunandi hópa ef kalla má og sumir eru þægilegri að eiga við en aðrir. Sá sem hefur sjaldan eða aldrei leitað læknis og hefur litla innsýn í eigin líkamstarfsemi getur verið jafn flókinn að annast og sá sem er nánast orðinn sérfróður sjálfur vegna krónísks krankleika síns. Sumir koma og segja manni hvað er að þeim og hafa oft á tíðum rétt fyrir sér, aðrir eru á kolrangri leið og þarfnast verulega að láta vísa sér veginn. Svo eru þeir sem geta ekki komið sér beint að efninu og þurfa að fara í marga hringi áður en hið eiginlega vandamál er tilgreint.

Eðli málsins samkvæmt eru mismunandi ástæður og aðstæður hjá hverjum og einum og þarf maður því að setja sig í þær stellingar svo viðtalið gangi upp. Oftast veit maður ekki um hvað viðtalið snýst fyrr en sjúklingurinn er sestur inn á stofu.

Lausn á vanda þess mállausa

Ein sérstök tegund sjúklings er sá mállausi, en eins og kom fram að ofan er afar mikilvægt að eiga samskipti til að nálgast greiningu og þá mögulega meðferð. Sá mállausi getur verið á öllum aldri, en er oftast í yngri kantinum, hann getur verið meðvitundarlaus og ófær um að tala þess vegna, eða sökum veikinda, áfalls eða viðlíka. Í flestum tilvikum er sá mállausi hins vegar barn sem foreldrar koma með til læknis og eina merkið sem sá sjúklingur tjáir um vanlíðan sína er grátur.

Í öllum tilvikum verður læknirinn að koma með einhvers konar lausn á vandanum, sem getur orðið býsna snúið, en að sama skapi það sem gerir starfið jafn skemmtilegt og raun ber vitni. Það er líklega þess vegna sem talað er um læknislist og má svo sem bera hana saman við leiklist að því marki að nauðsynlegt er að setja sig í ákveðin hlutverk allt eftir því hvaða sjúkling og vandamál er verið að glíma við hverju sinni.

Þessi nálgun verður alltaf persónuleg og einstaklingsbundin og væri synd að glata henni í framtíðinni þrátt fyrir að við gætum stungið sjúklingi í samband og fengið allar upplýsingar sem við þyrftum. Þannig yrðu allir sjúklingar „mállausir“.

Teitur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum