fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Hreinsun loftræstikerfa í fjölbýlishúsum mikilvæg

Kynning

Loftstokkahreinsunin K2

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 24. janúar 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loftstokkahreinsunin K2 ehf. sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa og hefur yfir áratuga reynslu af hreinsun loftræstikerfa á Íslandi. Magnús Ásmundsson, verkefnastjóri K2, segir fyrirtækið sinna einstaklingum sem og fyrirtækjum og það sé nóg að gera enda gríðarlega mikilvægt að hreinsa loftræstikerfi reglulega áður en þau skaða heilsu fólks.

Stundum er ekki þörf á hreinsun – þetta getið þið gert sjálf

Það kemur stundum fyrir að starfsmaður K2 mætir til að skoða loftræstingu, til dæmis í baðherbergi í fjölbýlishúsi, og þá kemur í ljós að ekki er þörf á hreinsun. Stundum þarf bara að skrúfa túðuna úr og þrífa. En þetta geta allir gert sjálfir. Þessi aðgerð er framkvæmd í þremur skrefum:

  1. Þú byrjar á því að skrúfa miðjuna úr
  2. Síðan snýrðu túðunni til að losa hana frá
  3. Loks skolar þú túðuna og skrúfar hana síðan aftur

Þegar þörf er á hreinsun – hvernig fer hún fram?

„Loftræsting í fjölbýlishúsum er í flestum tilfellum á gluggalausum baðherbergjum og geymslum. Það er mjög mikilvægt að loftræstingin nái að losa raka og hita sem safnast upp því að þegar loftstokkar eru skítugir og ná ekki að loftræsta rýmið þá er hætta á að raki þéttist í herberginu sem býður svo upp á skemmdir og jafnvel myglu.

Hreinsun fer þannig fram að starfsmenn K2 mæta og fara annaðhvort upp á þak eða á lagnaloft sé það til staðar, þaðan eru loftræstistokkar hreinsaðir frá þaki niður í hverja íbúð fyrir sig og í sumum tilfellum sótthreinsaðir. Einnig er blásari hreinsaður sé hann til staðar.

Fyrir og eftir útsog frá baði
Fyrir og eftir útsog frá baði

Að því loknu þarf að fara inn í allar íbúðir í húsinu sem tengjast loftræstingunni og þar er lofttúðan tekin úr og þrifin, og restin af loftstokk hreinsuð. Það er lítið ónæði fyrir íbúa hússins við svona hreinsun og yfirleitt tekur það ekki meira en 10–15 mínútur að klára hverja íbúð eftir að búið er að hreinsa lagnir og blásara frá þaki.

Æskilegt er að hreinsa útsogskerfi frá baðherbergjum á 3–5 ára fresti.“

Fyrir og eftir útsog á veitingahúsi
Fyrir og eftir útsog á veitingahúsi

Magnús bætir við að K2 bjóði upp á ástandsskoðun loftræstikerfa og mat á því hvort tími sé kominn á hreinsun; ekkert er rukkað fyrir þá þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustusíminn hjá Loftstokkahreinsun K2 ehf er 775-7770 eða 557-7000.
Heimasíðan er: http://k2.is/.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum