fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Splunkunýr bíll á sama verði og notaður

Kynning

Sparaðu með Sparibíl

Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 20. janúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílasalan Sparibíll er aðallega í bílainnflutningi og hefur síðan árið 2003 boðið viðskiptavinum sínum upp á töluvert betra verð en aðrir á nýjum og nýlegum notuðum bílum. Eigandi Sparibíls, Viktor Urbancic, er með yfir þrjátíu ára reynslu í faginu og veit sitthvað um bílasöluumhverfið hér heima og í Evrópu.

Nýtt og glæsilegt húsnæði að Hátúni 6a.
Nýtt og glæsilegt húsnæði að Hátúni 6a.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ódýrari en internetið

Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um að hægt sé að fá mun betri kjör á ýmsum vörum með því að versla þær sjálfur á netinu og láta senda heim. Þannig getur verið töluvert ódýrara að versla bíl á netinu heldur en við bílaumboðin hérna heima. „En við skulum ekki gleyma því að þegar verslað er á netinu er tekin ákveðin áhætta. Sú áhætta eykst eftir því sem varan er dýrari og því eru ekki allir sem treysta sér í það að kaupa heila bifreið á internetinu. Margt getur vafist fyrir fólki í sambandi við tryggingar og skilmála og ekki alltaf víst að slíkt sé innifalið í verði. Við hjá Sparibíl bjóðum upp á að sjá um þetta allt fyrir kúnnann,” segir Viktor. Viktor er mikill reynslubolti í faginu og því með góð sambönd við ýmsa bílaheildsala úti í heimi. „Við verslum við trausta bílasala í Evrópu sem bjóða bifreiðar á heildsöluverði. Okkur býðst svo enn betra verð á bílunum þar sem við kaupum fleiri bifreiðar en einstaklingurinn. Að auki fáum við betri kjör á flutningi vegna þess að við flytjum inn meira magn. Síðast en ekki síðst bjóðum við upp á greiðsluþjónustu þannig að viðkomandi getur borgað bílinn í áföngum. Án þess að það komi niður á kaupöryggi getum við svo lagt örlítið á heildsöluverðið, en náum jafnframt að halda verðinu niðri fyrir viðskiptavininn. Því getur það í mörgum tilfellum verið ódýrara að versla við okkur heldur en að gera það sjálfur á netinu,“ segir Viktor.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Flytjum inn það sem viðskiptavinurinn vill

“Við reynum að eiga á lager það sem er vinsælast hverju sinni og selst vel. Núna eigum við til dæmis um fjörutíu bíla á lager. Fólk getur líka komið til okkar með séróskir um bifreiðar. Þannig nýtum við sambönd okkar til þess að flytja inn þá bifreið sem viðskiptavinurinn óskar sér, en kjörin eru auðvitað mismunandi eftir atvikum. Á heimasíðunni okkar er ennfremur hægt að sjá myndir af um 350 bílum sem við getum fullyrt að þú sparir á með því að kaupa hjá okkur,“ segir Viktor.

Náðum að dekka sendibílamarkaðinn

„Við höfum verið að sérhæfa okkur í sendibílum og undanfarið höfum við verið að selja mjög mikið af þeim, bæði nýjum og líka nýlegum notuðum. Á tímabili var nær ómögulegt fyrir iðnaðarmenn að fá notaða sendibíla þar sem bílasölurnar áttu þá einfaldlega ekki. Lítið hafði selst af nýjum sendibílum árin áður vegna þess að lítið var að gera í iðnaðarbransanum. Þess vegna var minna um að menn væru að skipta þeim út. Þar náðum við hjá Sparibíl að dekka þann markað þar sem við gátum flutt inn nýja sendibíla á 700.000 til milljón króna lægra verði en umboðin voru að bjóða,“ segir Viktor.

Splunkunýr og ónotaður bíll hjá Sparibíl á sama verði og tveggja ára notaður

Aðspurður hvort Sparibíll taki notaða bíla upp í kaup á nýjum bíl þá segir Viktor að hann geri það í sumum tilfellum, en að eðlilega fái menn yfirleitt lægra verð fyrir bílinn en hjá öðrum bílasölum, þar sem Sparibíll bjóði bifreiðar á miklu betra verði en aðrir. „Í sumum tilfellum hef ég verið að bjóða nýjan bíl á svipuðu verði og aðrar bílasölur gefa fyrir til dæmis tveggja ára gamlan notaðan bíl af sömu tegund. Að sjálfsögðu get ég ekki tekið tveggja ára notaðan bíl í sléttum skiptum fyrir splunkunýjan,“ segir Viktor.

Hér er Sparibíll staðsettur.
Hér er Sparibíll staðsettur.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Sparibíll er nýfluttur í stórglæsilegt húsnæði í Hátún 6a.
Opið er í versluninni alla virka daga frá 12.00-18.00.
Hægt er að hafa samband í síma: 577-3344.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Sparibíls, sparibill.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum