fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Einungis handþvottur – engir kústar eða burstar

Kynning

Bón- og þvottastöðin

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 23. september 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bón- og þvottastöðin státar af sérlega glæsilegri bílaþvottastöð að Grjóthálsi 10, við hliðina á Skeljungi við Vesturlandsveginn. Að sögn Ara Rafns Vilbergssonar framkvæmdastjóra var Bón- og þvottastöðin fyrsta sjálfvirka bílaþvottastöðin á Íslandi en hún var stofnuð árið 1968. Rekstur stöðvarinnar hófst í Sóltúni og var þar samfleytt í nærri 40 ár – eða allt til ársins 2007.

Hjá Bón- og þvottastöðinni er einungis beitt handþvotti, engir kústar eða burstar notaðir, enda telur Ari það veita besta árangurinn og skila mun meiri gæðum: „Í boði hjá okkur er öll sú meðferð sem nýtist best til þess að þrífa bílinn og bóna hann af natni, eins og tjöruhreinsun, háþrýstiþvottur, handþvottur, bón og þurrkun á sjö mínútum,“ segir Ari. „Bílaþvotturinn er allur unninn í höndunum með svömpum, bón er síðan sett á bílinn og loks þurrkað með míkrófíber-klútum ásamt því að þurrkað er úr fölsum bílanna. Við leggjum einungis stund á handþvott sem við teljum veita besta árangurinn og notum hvorki kústa né bursta.“

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Byltingarkennd, glæný leið til að bóna bílinn

„Bón- og þvottastöðin tók nýlega í notkun glænýja bónaðferð sem kallast Gullfoss og hefur slegið í gegn hjá okkur,“ segir Ari.

„Um er að ræða þá skemmtilegu viðbót að fá allsherjar bón á bílinn sem endist mun lengur og veitir líka aukinn gljáa. Gullfoss er ný og byltingarkennd aðferð við að bera bón á bíla. Bíllinn fer þá í gegnum vegg af þykku lagi af bóni sem rennur í alla króka og kima á bílnum auk þess sem litadýrðin gleður augað.“

Ummæli ánægðra viðskiptavina:

„Algjörir snillingar og frábær þjónusta.“

„5 stjörnu þvottastöð!“

„Ég ætla aldrei aftur að þvo bílinn minn sjálfur …“

„Fæ alltaf afbragðsþjónustu og glampandi hreinan bíl hjá þessum snillingum!“

Bón og þvottastöðin

Grjóthálsi 10
110 Reykjavík
Sími: 588-1010
Opnunartími: Virka daga: 8.00–18.00, laugardaga: 10.00–16.00

www.bon.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum