1901 Vísindamaðurinn Nikola Tesla situr sallarólegur og fylgist með uppfinningu sinni, sem ætluð var til að flytja rafmagn þráðlaust. Þetta varð síðar grunnurinn að Wardenclyffe-turninum, útvarpssendi.
1884 Það var ekki lítið verk að byggja Frelsisstyttuna, Statue of Liberty. Það voru Frakkar sem gáfu Bandaríkjamönnum styttuna á aldarafmæli Bandaríkjanna. Styttan er úr kopar, þakin spanskgrænu. Í faðmi hennar er stjórnarskrá Bandaríkjanna en við fætur hennar er slitin keðja, sem táknar fjötrana sem þeir slitu sig úr. Frédéric Bartholdi er hönnuður styttunnar. Gustave Eiffel teiknaði burðarvirkið.Hún er 93 metra há.
1909 100 manns bíða eftir því að dregið verði úr landskikalottói þar sem deila átti upp tæplega fimm hekturum. Svæðið var grunnur borgarinnar Tel Avív.
1899 Það má finna sér ýmislegt til dægrastyttingar. Hér takast á sjóliðar á herskipinu U.S.S. New York.
1888 Þau fengu ekki að vera saman, en fengu að vera nálægt hvort öðru. Hér má sjá grafreiti hollenskrar, kaþólskrar konu og eiginmanns hennar sem var mótmælendatrúar. Þau fundu leið til að sýna samstöðu sína, jafnvel í eilífðinni.
1912 Ef myndin prentast vel má sjá hér skipbrotsmenn af Titanic koma að skipinu Carpathia.