fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Fljúgandi einhyrningar og nammirigning

Skrímslaverksmiðjan slær í gegn

Ritstjórn DV
Laugardaginn 27. ágúst 2016 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinkonurnar og hönnuðirnir Helga Ósk Hlynsdóttir og Karen Briem kynntust í London og hafa síðan brallað saman ýmislegt. Nýjasta verkefni þeirra er hið svokallaða skrímslaverkstæði þar sem börn fá tækifæri til þess að hanna sinn eigin skrímslabúning. Verkefnið vakti mikla lukku og hyggjast þær nú færa út kvíarnar og bjóða upp á sambærilegt fyrir fullorðna.

Karen er lærður búningahönnuður og hefur starfað sem slíkur við hin ýmsu verkefni og í leikhúsum víða. Helga Ósk lauk nýlega námi sem skóhönnuður og starfar nú sem einn stofnenda „Serious business“, fyrirtæki sem sérhæfir sig í mörkun (branding) og hefur höfuðstöðvar í München.

„Við kynntumst þegar við vorum búsettar í London og bjuggum þar um nokkurra ára skeið. Við erum báðar alltaf á ferð og flugi þótt hjartað sé alltaf á Íslandi. Samstarf okkar hófst úti í London árið 2013 þar sem við hönnuðum ásamt fleirum nýtt konsept sem við kölluðum Paper People, það verkefni er enn í vinnslu og væntanlegt frá okkur fyrr en varir.“

Byrjuðu á Lunga

Það er augljóst að stelpurnar eru mjög framkvæmdaglaðar og hrinda auðveldlega hugmyndum sínum í framkvæmd.

„Karen er heilinn á bak við Skrímslaverksmiðjuna, en hún leit fyrst dagsins ljós á listahátíðinni Lunga á Seyðisfirði 2014 og var þá ætluð fullorðnum. Hún fékk mig til liðs við sig í sumar og þá var boðið upp á Skrímslaverksmiðju fyrir 8–10 ára krakka sem kunni mikilli lukku að stýra, bæði fyrir okkur, þátttakendur og foreldra þeirra,“ segir Helga Ósk, hugfangin og hrærð yfir gríðarlega skemmtilegu og vel heppnuðu verkefni sumarsins.

Ástríða, gleði og glaumur

Skrímslaverksmiðjan hljómar sannarlega spennandi, en hvað felst í þessu fyrirbæri og hvaða hugmyndafræði er að baki?

„Hugmyndafræðin var auðvitað bara að umbreyta börnum í skrímsli – nei, djók. Okkur langaði bara að gefa börnum tækifæri til að líta upp frá skjánum og nota hendurnar. Fá frelsi til að skapa, sulla, upplifa eitthvað nýtt og uppgötva hversu auðvelt er að skapa þrívíð form úr nánast engu. Enn fremur felst svo mikil upplifun í að klæðast búning sem skapaður er úr eigin hugarheimi! Í þetta samtvinnuðust mörg góð gildi, til að mynda mikilvægi góðrar samvinnu.“

Fjölbreytnin er mikil eins og sjá má á þessum skemmtilegu búningum.
Skrímslabörn Fjölbreytnin er mikil eins og sjá má á þessum skemmtilegu búningum.

Helga og Karen lögðu áherslu á lýðræðiskennslu í Skrímslaverksmiðjunni og nefna dæmi um að þátttakendur sköpuðu sameiginlega plánetu undir skrímslin sín. Krafðist þetta bæði samvinnu og umburðarlyndis. Úr varð nýr og stórkostlegur heimur í hverri viku.

„Á hverju námskeiði bjuggum við til plánetu frá grunni þar sem skrímslin áttu að búa. Við notuðumst við lýðræðislegar kosningar um það hvað átti að vera á plánetunni og þar fengum við smjörþefinn af því hvað krakkar eru frumlegir og með fjörugt ímyndunarafl, enda urðu pláneturnar ansi skrautlegar. Draumar á borð við rignandi nammi, hoppukastalahús og fljúgandi einhyrninga sem prumpa regnboga fengu að verða að veruleika. Skrímslaverksmiðjunni fylgdi mikil gleði og glaumur svo ekki sé minnst á ástríðu. Eðlilegt var að upp kæmi ágreiningur um lokaútkomu skrímslanna og beittum við skemmtilegum tólum og tækjum til þess að koma á sáttum, öllum til gagns og gleði.“

Áhugi meðal fullorðinna

Eins og áður segir voru námskeiðin upphaflega ætluð fullorðnum og eftir sumarið hafa þær stöllur fengið margar fyrirspurnir frá foreldrum um að koma á fót aftur skrímslaverksmiðju fyrir fullorðna.

Vinkonurnar eru rétt að byrja og munu eflaust aðstoða enn fleiri við að breyta sér í skrímsli.
Miklir möguleikar Vinkonurnar eru rétt að byrja og munu eflaust aðstoða enn fleiri við að breyta sér í skrímsli.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Við sjáum mikla og skemmtilega möguleika með áframhald Skrímslaverksmiðjunnar. Stefnan er að leyfa bara „Skrímsló” að þróast áfram og standa til boða fyrir áhugasama, unga sem aldna, sem eins konar hópefli fyrir vinahópa, vinnuhópa, bekki, saumaklúbba, gæsa- og steggjapartí eða börn og foreldra saman. Við erum bara opnar fyrir öllu sem fólki dettur í hug.“

Að lokum benda vinkonurnar á að best sé að nálgast þær í gegnum Facebook-síðuna Skrímslaverksmiðjan eða á netfangið skrimslaverksmidjan@gmail.com, en þar taka þær við fyrirspurnum og hugmyndum að frekari útfærslum á þessu skapandi og skemmtilega verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum