fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Nær allt sem lýtur að smíðum og garðvinnu

Kynning

Matti smiður: Sólpallar, skjólveggir og hellulögn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 27. júlí 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matthías Pétursson húsgagnasmiður er með þrjátíu ára reynslu af smíði og vinnur með Matthíasi syni sínum, sem er að ljúka námi í húsasmíði, og mun taka við rekstri föður síns þegar fram líða stundir. Þeir feðgar taka að sér flest það sem lýtur að smíði, nýsmíði og lagfæringum. Matthías segist lengi vel hafa unnið við sérsmíði á innréttingum:

„Undanfarin ár hefur sérsvið mitt hins vegar verið garðar og hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt verkefni eins og sumarhús, einkalóðir, lóðir undir nýbyggingar og eins eldra húsnæði. Að auki sé ég um nýja garða og endurgerð eldri garða.“

Sólpallar, skjólveggir og hellulögn

„Sólpallar eru ekki bara til þess að njóta sólarinnar heldur nýtast einnig sem frábær framlenging á sjálfri stofunni,“ segir Matti. „Nú er líka annatími í hellulögn og girðingum. Skjólveggir, bekkir, kofar og geymslur spretta upp eins og gorkúlur í görðum landsmanna þessa dagana,“ bætir hann við og nefnir að fátt sé skemmtilegra en vorverkin.

Matti smiður hefur yfir 30 ára reynslu og hefur smíðað ófáa sólpalla og skjólveggi.
Matti smiður hefur yfir 30 ára reynslu og hefur smíðað ófáa sólpalla og skjólveggi.

Heitir pottar – framlenging á stofunni

„Fjölmargir hafa fengið sér heitan pott í garðinn á undanförnum árum. Það skiptir meginmáli að pallurinn við pottinn sé vel úthugsaður og huga þarf vel að staðsetningu og umhverfi pottsins. Best er að pallurinn sé á tveimur hæðum og smíða tröppur á snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til þess að auka rýmið umhverfis pottinn. Tröppurnar geta svo einnig nýst fyrir blómapotta og luktir sem gera umhverfið mun hlýlegra við pottinn. Á efri pallinum myndast þá líka rými fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar eru ekki stórir eins og í þessu tilfelli er mikið atriði að fella pottinn inn í umhverfið til þess að skapa rými. Rýmið umhverfis pottinn er t.d. hægt að nota fyrir glös og diska þegar hann er í notkun.“

Finna einnig fallegar lausnir fyrir landsbyggðina

„Við Mattarnir smíðum líka utan um sorptunnur á faglegan hátt og búum til falleg blómabeð til skrauts og ofan á hleðslur. Við notum ýmsar viðartegundir við smíðina eins og t.d. lerki, eik, furu og jafnvel tekk. Við tökum glaðir við verkum á landsbyggðinni og höfum sinnt verkefnum um land allt, eins og t.d. á Flúðum, Þingvöllum, Snæfellsnesi og í Skorradal. Við Mattarnir smíðum í raun allt sem hugsast getur – innandyra sem utan. Við getum séð um parketlögn, parketslípun, milliveggjasmíði, uppsetningu innréttinga, uppsetningu hurða, þakviðgerðir og fleira,“ segir Matti sem er í ljómandi sumarskapi.

Matti smiður, netfang: mattismidur@mattismidur.is, sími: 893-3300 og 691-0621
www.mattismidur.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum