fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Persónuleg þjónusta og legsteinagerð myndhöggvarans

Kynning

Steinsmiðja Akureyrar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 26. júlí 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Steinsmiðju Akureyrar sameinast mikil reynsla og framúrskarandi fagkunnátta í legsteinagerð. Stofnandi fyrirtækisins, Þórir Barðdal, hefur unnið að höggmyndalist og steinsmíði í um 30 ár. Hann er lærður myndhöggvari, nam við Myndalista- og handíðaskóla Íslands og við Listaakademíuna í Stuttgart í Þýskalandi. Hann starfaði um skeið við höggmyndalist í Houston í Texas í Bandaríkjunum og í Portúgal. Fluttist síðan aftur til Íslands árið 1996 og hefur síðan þá starfað við höggmyndalist og legsteinagerð þar sem síðarnefnda greinin hefur náð yfirhöndinni.

„Ég hanna þessa steina mikið til sjálfur. Sumir byggja á ákveðnum staðli en á hverju ári kem ég með nýja útfærslu sem er alveg ný hönnun. Sumar gerðir ná miklum vinsældum en aðrar minni, eins og gengur,“

segir Þórir. Steinsmiðja Akureyrar er staðsett að Glerárgötu 36 á Akureyri en þjónustusvæðið er allt Norðurland, sem og Austurland og Austfirðir. Þórir fer um allt Norðurland og setur niður steina, en steina sem pantaðir eru á Austurlandi og Austfjörðum sendir hann til viðtakenda. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði, fyrirtækið tekur hann á sig. Sama verð gildir fyrir allt Norðurland og allt Austurland.

Perla Fanndal sölustjóri er í beinu sambandi við viðskiptavinina
Perla Fanndal sölustjóri er í beinu sambandi við viðskiptavinina

Granít og stuðlaberg

Steinsmiðjan Akureyri vinnur legsteina úr tveimur steintegundum, graníti og stuðlabergi. Að sögn Þóris henta þessar steintegundir best til legsteinagerðar vegna endingar sinnar og vegna þess að þær standast vel íslenskar aðstæður.

„Stuðlaberg er eina íslenska efnið sem hægt er að nota í legsteina enda er það mjög þétt í sér. Granítið hefur hins vegar vinninginn hvað varðar liti og áferð, en það er til í öllum litum,“
segir Þórir. Mun meira er pantað af granítsteinum en steinum úr stuðlabergi.

[[01F9A366AD]]

Steinsmiðjan Akureyri sinnir líka merkingum á legsteina
„Stundum kemur fólk bara með stein af hlaðinu heima eða úr fjallinu fyrir ofan bæinn. Þá aðstoðum við með merkingarnar og gerum steinana þannig úr garði að þeir virki sem legsteinar. Þarf þá kannski að saga neðan af þeim og slípa þá til. Og síðan að grafa í þá,“

segir Þórir.

Þetta er óneitanlega mjög persónuleg þjónusta og segir Þórir að fyrirtækið leggi mikið upp úr því og sé alltaf reiðubúið að sinna séróskum viðskiptavina. Þjónustan verður að vera persónuleg, sveigjanleg og umfram allt traust:

„Þetta er þjónusta sem fólk leitar í örsjaldan á ævinni og það má ekkert bregðast. Við leggjum afar mikla áherslu á að allt standist – alltaf. Það má ekki bregðast,“

segir Þórir með þunga.

Steinsmiðjan Akureyri býður einnig upp á úrval af luktum, vösum og fuglum. Fróðlegt er að kynna sér úrvalið á heimasíðunni, minnismerki.is.

Sem fyrr segir er Steinsmiðja Akureyrar staðsett að Glerárgötu 36 á Akureyri. Opið er virka daga frá 13 til 17, en lokað um helgar. Síminn er 466-2800.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum