fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Markmiðið að efla þroska einstaklingsins til líkama, sálar og anda

Kynning

Sumarbúðir KFUM, Vatnaskógur, Vindáshlíð, Ölver, Hólavatn og Kaldársel

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 22. maí 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarbúðir KFUM og KFUK eru vinsæll valkostur barna og unglinga á hverju sumri. Flestir dvalarflokkar eru 5–7 daga langir og er boðið upp á fjölbreytt úrval aldursskiptra flokka fyrir krakka á öllum aldri. Það er margt í boði í sumarbúðunum og tíminn flýgur áfram við leik og störf.

„Hópleikir, íþróttir, útivera, listsköpun, bátsferðir, söngur, leikrit og svo ótal margt fleira er meðal þess sem krakkarnir fá að gera í sumarbúðunum og að sjálfsögðu er það líka breytilegt eftir aldri og að einhverju leyti ólíkt á milli sumarbúða,“ segir Jóhann Þorsteinsson, æskulýðsfulltrúi hjá KFUM og KFUK.

Sumarbúðir KFUM og KFUK eru fimm talsins, Vatnaskógur, Vindáshlíð, Kaldársel, Ölver og Hólavatn. Að auki býður félagið upp á leikjanámskeið í Kópavogi og í Reykjanesbæ þar sem krakkarnir geta komið að morgni og farið heim síðdegis. Nú þegar hafa tæplega tvö þúsund börn verið skráð fyrir sumarið en búast má við að um þúsund börn bætist í þann hóp áður en fjörið byrjar í júní.

Saga sumarbúða KFUM og KFUK er tæplega hundrað ára og það er því næsta öruggt að starfið byggir á mikilli reynslu, „en markmiðið er alltaf það sama, að efla þroska einstaklingsins til líkama, sálar og anda,“ segir Jóhann.

Allar frekari upplýsingar um sumartilboð KFUM og KFUK má fá í síma 588-8899 og á heimasíðu félagsins kfum.is.

Heimasíða

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum