fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Kjaran: Grátt og hrátt útlit

Kynning

Fjölbreyttir og líflegir litir er þó að koma sterkari inn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 2. maí 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tískan í gólfefnum er alltaf að breytast. Á heimilum landsmanna hafa parket og steinn notið mikilla vinsælda undanfarna áratugi og litbrigði og form þessara efna hafa verið í stöðugri þróun. Kjaran ehf. er heildverslun með gólfefni og skrifstofutæki. Fyrirtækið á sér langa sögu sem hófst þegar heildverslun Magnúsar Kjaran var stofnuð árið 1930 og er hún því með elstu heildsölum landsins.

„Gólfefni er ein aðalvaran okkar,“ segir Arnar R. Birgisson framkvæmdastjóri. Hann segir að mikil reynsla og þekking hafi myndast hjá fyrirtækinu á þessum tíma og starfsmenn þess sinni þörfum og óskum viðskiptavina af fagmennsku.“

Lökkuð, flotuð gólf

Nýjustu form steingólfa eru lökkuð flotuð gólf, en útlit þeirra er grátt og hrátt og þau falla vel að tísku dagsins.
Að sögn Arnars er spennandi nýjung hjá fyrirtækinu. „Það er BetonDesign frá hollenska fyrirtækinu Eurocol sem inniheldur öll nauðsynleg efni til að fullvinna flotað og lakkað steingólf og við bjóðum upp á átta litbrigði. Við höfum árum saman selt undirlags- og viðgerðarefni frá Eurocol og þau eru þekkt á meðal fagmanna hér á landi sem fyrsta flokks vara.

Annar valmöguleiki hjá okkur fyrir þá sem sækjast eftir útliti flotaðra steingólfa er Concrete vörulínan frá Forbo sem inniheldur 16 steingrá litbrigði af linoleum gólfdúkum. Kostir linoleum gólfdúka eru hlýtt yfirborð, mýkt, slitstyrkur og hljóðdempandi eiginleikar. Linoleum er algjörlega náttúrulegt efni og mjög umhverfisvænt.“
Mikið úrval vínylgólfefna

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Grátt og brúnt hefur verið ráðandi í litavali á gólfefnum undanfarin ár en nú merkjum við breytingu. Fólk er farið að velja fjölbreyttari og líflegri liti. Þegar sömu mynstrin og litirnir hafa verið vinsælir í ákveðinn tíma koma viðskiptavinirnir aftur og leita að nýjum möguleikum. Við erum alltaf að fá inn nýjar vörur og vörulínur,“ segir Arnar.

„Auk þess höfum við mikið úrval vínylflísa og vínyldúka sem líta algjörlega út eins og náttúrleg gólfefni og vinsældir þessara gólfefna hafa aukist mjög á síðustu árum um allan heim. Vínylflísarnar eigum við til í útliti steinflísa og fjölbreyttra viðartegunda. Kostir vínylgólfefna eru þau að efnið er vatnshelt og draga ekki í sig raka. Þau þenjast því ekki og dragast saman eins og náttúrulegur viður, auk þess sem vínyl þarf aldrei að slípa, lakka eða bóna,“ segir hann.
(Sjá mynd af sýnishornabókum á langborði).“

Kjaran býður upp á alla þjónustu, hjálpa við að velja rétta efnið, senda menn á staðinn til að taka mál, gera tilboð og útvega fagmenn í verkið.

Kjaran ehf., Síðumúla 12 – 14, 108 Reykjavík. Sími: 515 – 5500.
Opið er alla virka daga frá frá kl 8 – 18

www.kjarna.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum