fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Að vera vegan

Lífsstíll án dýraafurða nýtur vaxandi vinsælda

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. maí 2016 07:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir sem eru veganar neyta ekki matvöru sem er framleidd úr eða með dýrum. En veganismi getur snúist um meira en bara mataræði, því í raun er um ákveðna heimspeki að ræða sem gerir ráð fyrir því að mannfólk hafi ekki rétt til að stilla sér upp ofar öðrum dýrum á jörðinni, og því sé einfaldlega rangt að nýta dýr, hvort sem það er til neyslu, framleiðslu á matvöru, eða klæðnaði.

Hugtakið vegan eða veganismi kom fyrst fram árið 1944, og var þá notað til að lýsa mataræði þeirra sem voru grænmetisætur og neyttu ekki mjólkurvara. Hugtakið var svo endurskilgreint sem hugmyndafræði um að menn skuli lifa án þess að nýta dýr.

Vaxandi vinsældir

Veganismi nýtur vaxandi vinsælda í okkar heimshluta, úrval matvöru sem framleidd er án dýraafurða fer ört vaxandi og sömuleiðis framboð vegan-rétta á veitingastöðum. Ísland er þarna engin undantekning, þó svo að við séum líklega nokkrum árum eftir nágrannaþjóðum okkar í þróuninni. Núna er hægt að fá tofu, möndlumjólk, gott úrval bauna, og vegan-osta í öllum almennilegum matvörubúðum. Fyrsti vegan-veitingastaðurinn í Reykjavík var opnaður nýlega, og æ fleiri rótgrónir veitingastaðir sjá nú ástæðu til að bjóða upp á vegan-kosti á matseðlum. Ísbúðir eru meira að segja farnar að bjóða upp á vegan-ís – íslenska vegan-samfélaginu til mikillar ánægju.

Góðar síður fyrir vegana

www.veganeyja.org: Hugmyndir um vegan-kosti í mataræði, upplýsingar um vegan-merkta matvöru í íslenskum verslunum.

www.veganuar.is: Síða stofnuð utan um veganúar, þar sem fólk er hvatt til að prófa vegan-mataræði í einn mánuð. Upplýsingarnar eru þó tímalausar.

www.vegandora.com: Fjölbreyttar uppskriftir eftir Dóru Matthíasdóttur.

www.graenmetisaetur.is: Vefur grænmetisæta og vegana. Ýmiss konar upplýsingar, meðal annars um veitingastaði með vegan-kosti.

Áhugi á veganisma af umhverfisástæðum fer líka vaxandi. Mannfjöldaspár gera ráð fyrir að mennskir jarðarbúar verði orðnir níu milljarðar árið 2050, og til að standa undir matarframleiðslu miðað við núverandi mataræði mundum við þurfa þrjár plánetur á stærð við jörðina. Okkur er þannig að verða ljóst að eitthvað þarf að breytast. Þannig benda veganar á að mataræðið sé sjálfbært.

Ekki bara fyrir heilsuna

Veganismi snýst þannig um fleira en bætta heilsu og lengra líf. Veganar eru líklegri en aðrir til að sneiða hjá notkun leðurs, silkis, kerta úr býflugnavaxi og að sjálfsögðu snyrtivara sem innihalda einhvers konar dýraafurðir eða eru prófaðar á dýrum í framleiðsluferlinu. Þeir borða heldur ekki hlaup, frómas eða annað sem inniheldur gelatín sem framleitt er úr svínasinum, og að sjálfsögðu ekki kjötkraft.

Í rannsókn sem birt var í The American Journal of Clinical Nutrition árið 2009, var vegan-mataræði greint og borið saman við almennt mataræði. Þar kom í ljós og vegan-mataræði inniheldur meira af trefjum, magnesíum, fólínsýru, C-vítamíni, E-vítamíni, járni og plöntuefnum, en minna af hitaeiningum, mettaðri fitu, kólesteróli, omega-3 fitusýrum, D-vítamíni, kalki, sinki og B12-vítamíni. Margir veganar kjósa þar af leiðandi að taka vítamín og bætiefni.

Vel samsett og fjölbreytt vegan-mataræði er líka talið geta minnkað líkur á þróun sumra sjúkdóma, eins og sykursýki af gerð 2, háþrýstings og offitu.

Viltu verða vegan?

Góð ráð fyrir þá sem ætla að verða vegan
Viltu verða vegan?

Þú gætir byrjað smátt, til dæmis skipt yfir í tofu og baunir í stað kjöts og fisks í þessari viku, og plöntumjólk og vegan-osta í þeirri næstu. Í þriðju vikunni gætirðu tekið fyrir nammi, krydd og sósur, og í þeirri fjórðu velt fyrir þér afstöðu þinni til leðurjakka og silkisængurfata.

Líklega muntu þurfa vítamín og bætiefni. Fáðu þér að minnsta kosti omega-3, B12-vítamín og járn. Athugaðu að kaupa omega-3 sem unnið er úr plöntum en ekki fiskiolíu – hún er jú fjarri því að vera vegan.

Það gæti verið góð hugmynd að panta tíma hjá heimilislækni í upphafi nýja vegan-lífsins. Þannig getur þú fylgst með því hvaða áhrif mataræðið hefur á blóðfitur, blóðþrýsting og aðra heilsufarsþætti.

Leitaðu til vegana. Þeir sem hafa séð ljósið eru yfirleitt einstaklega hjálpsamir og ráðagóðir.

Íslenskir veganar á Facebook

Íslenskir veganar á Facebook

Hópurinn Vegan Ísland er starfandi á Facebook og telur tæplega 3.500 meðlimi. Í lýsingu á hópnum segir „Vegan Ísland er umræðuhópur um veganisma á Íslandi. Allir sem hafa áhuga á að gerast vegan eru velkomnir í hópinn.“Meðlimir hópsins eru duglegir að skiptast á ráðum og skoðunum um allt sem viðkemur veganisma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum