fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Ljóska með ferskum jarðarberjum

Ljúffeng og einföld – Bragðast eins og vorið sjálft!

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 1. maí 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er farið að vora! Farfuglar mættir á svæðið, borgarstarfsmenn byrjaðir að slá gras, börn farin að hjóla í skólann og íslensk jarðarber komin í búðir. Þau eru dísæt og bragðgóð, og hafa það umfram erlendu jarðarberin að hafa ekki ferðast um langan veg á leið í búðirnar hér á norðurhjara. Við getum öll lagt okkar af mörkum með því að velja það sem er ræktað og framleitt sem næst okkur, þegar við kaupum í matinn. Flutningur varnings um allar jarðir, hvort sem er með flugvélum eða risaskipum, hefur nefnilega í för með sér mengun sem hægt er að minnka með því að velja rétt.

Hún er ekki bara liðtæk í eldhúsinu, heldur lætur hendur standa fram úr ermum í garðinum líka.
Begga í beðinu Hún er ekki bara liðtæk í eldhúsinu, heldur lætur hendur standa fram úr ermum í garðinum líka.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Matgæðingurinn og eldhúsgyðjan Bergljót Björk töfraði fram þessa girnilegu köku sem við birtum í blaði dagsins. Hún er innblásin af hinni klassísku, sænsku klessuköku (kladdkaka á sænsku), sem Begga kynntist þegar hún bjó með fjölskyldu sinni í Svíþjóð.

Jarðarberin eru einstaklega girnileg, hálfsokkin ofan í sæta kökuna.
Litir vorsins Jarðarberin eru einstaklega girnileg, hálfsokkin ofan í sæta kökuna.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Um kökuna segir Begga: „Þetta er einföld kaka sem skemmtilegt er að baka. Mér finnst tilheyra vorinu að nota jarðarber í bakstur, og þau njóta sín einstaklega vel á ljósum bakgrunninum. Bragðið er líka ómótstæðilegt, sætt súkkulaðið og súrsæt berin hreinlega dansa saman í munninum. Slær alltaf í gegn!“

Ljóska með jarðarberjum

200 g hvítt súkkulaði
150 g smjör

210 g hveiti
1 msk. vanillusykur
1 tsk. salt

3 egg
1 dl sykur
1 askja íslensk jarðarber
Möndluspænir, handfylli

Begga segir kökuna slá í gegn í hvert sinn sem hún er borin á borð.
Vinsæl hjá öllum aldurshópum Begga segir kökuna slá í gegn í hvert sinn sem hún er borin á borð.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Byrjið á að stilla bakaraofninn á 165 gráður. Bræðið smjör í skál yfir vatnsbaði og saxið hvíta súkkulaðið smátt. Þegar smjörið er alveg bráðnað er súkkulaðið sett út í og látið bráðna. Hvítt súkkulaði er frekar viðkvæmt og getur auðveldlega farið í kekki ef það hitnar of mikið, svo það er ágætt að leyfa hitanum af brædda smjörinu að sjá um að bræða súkkulaðið.

Blandið saman þurrefnunum í skál og leggið til hliðar.

Þeytið nú saman eggin og sykurinn þar til blandan er létt og ljós. Athugið að það er ágætt að hafa leyft eggjunum að ná stofuhita áður en þau eru notuð. Ef öll hráefni eru við svipað hitastig, eru minni líkur á kekkjum og furðulegri áferð þegar þeim er blandað saman.

Nú er súkkulaðismjörbráðinni hellt út í og blandað vel saman. Ef hrærivél er notuð er ágætt að skipta yfir í spaða í stað písks á þessu stigi.

Þurrefnin eru nú sigtuð saman við deigið og velt varlega saman. Hér má ekki ofhræra! Takið öllu með ró og blandið varlega saman. Deiginu er hellt í vel smurt form og skorin jarðarber látin sökkva sér í deigið. Möndluspæni dreift yfir.

Bakað í um 25 mínútur. Kakan á ekki að ná lit eða fullbakast, heldur vera örlítið klístruð. Látið kökuna kólna alveg áður en hún er borin fram.

Verði ykkur að góðu!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum