fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Heitir pottar, saunaklefar og einn fullkomnasti nuddstóll veraldar

Kynning

ShopChina.is býður heilsutengdar lúxusvörur á besta fáanlega verði

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 27. apríl 2016 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ShopChina.is, Súðavogi 7, Reykjavík, býður upp á mikið úrval af heitum pottum á afar hagstæðu verði sem fæst með hóppöntun. Má þar nefna hitaveituskeljar með loki og höfuðpúðum, fjögur stykki á aðeins 259.900 kr. Hitaveituskel með nuddi, lýsingu, hitara, umgjörð, loki, höfuðpúðum, útvarpi, hátölurum o.fl. Verð frá: 499.000 kr.

Pottarnir koma allir tilbúnir fyrir sírennsli, hægt er að aftengja hitara og tengja heita vatnið beint inn á pottinn, fyrir þá sem búa á hitaveitusvæði. Með öllum pottum fylgir lok, umgjörð, tröppur, Balbóa-stýrikerfi og hitari frá Bandaríkjunum. Hægt er að velja um marga liti á skel, umgjörð og lok.

Hóppöntun er í gangi núna og um að gera fjárfesta í góðum potti fyrir sumarið á frábæru verði.

Á ágætri heimasíðu fyrirtækisins, shopchina.is, má finna greinargóðar upplýsingar um fleiri gerðir heitra potta, einfalt og þægilegt fyrirkomulag hóppöntunar og greiðslukjör.

Fyrirtækið ShopChina er í eigu Kristjáns Ásbergssonar. Á árunum 2005 til 2009 rak hann fyrirtæki í Shanghai sem þjónustaði íslensk fyrirtæki varðandi vöruinnkaup frá Kína. Árið 2009 flutti hann til Íslands á ný og stofnaði ShopChina.is og þjónar þannig kaupendum beint með innkaupum á heilsutengdum lúxusvörum frá Kína – á eins hagstæðu verði og hugsast getur.

Á meðan heitir pottar eru keyptir með hóppöntun er ShopChina.is með saunaklefa, nuddstóla og fleiri heilsuvörur á lager.

Auðvelt að skipta kaupum á greiðsluseðla til allt að 36 mánaða með Pei.

Infrarauðir saunaklefar – frábærir fyrir heilsuna

ShopChina.is býður upp á gott úrval af infrarauðum saunaklefum sem eru afar smekklegir í útliti, fyrirferðarlitlir og þægilegir í uppsetningu. Infrarauðir hitageislar – eða IR-geislar – hafa margvíslega og magnaða kosti fyrir heilsufar og vellíðan fólks. Meðal annars lina þeir þjáningar vegna gigtar, leysa upp vöðvabólgu og mýkja upp vöðva.

Enn fremur stuðla IR-geislar að fallegri og heilbrigðri húð auk þess að draga úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum. Sá sem situr í IR-saunu svitnar þrisvar sinnum meira en í hefðbundnu gufubaði og getur brennt allt að 600 hitaeiningum á 30 mínútum.

Kostirnir eru margir fleiri, meðal annars sá að IR-geislar auka kynhvöt beggja kynja.
Heilsu- og snyrtistofur um allt land eru komnar með infrarauðan sauna í notkun frá ShopChina.is.

Einn fullkomnasti nuddstóll veraldar

ShopChina.is býður upp á gott úrval af frábærum nuddstólum undir merkinu iRest en það fyrirtæki hefur verið skilgreint sem eitt stærsta nuddstólafyrirtæki í Kína. Er iRest með 60 tæknileyfi og hefur þróað 29 tækni- og vísindavörur. iRest hefur hlotið margar veigamiklar alþjóðlegar viðurkenningar og vörur fyrirtækisins eru seldar í yfir 150 löndum.

Meðal margra iRest nuddstóla sem ShopChina.is hefur til sölu er hinn frægi A50-7 sem talinn er vera einn fullkomnasti nuddstóll veraldar, nuddar þig frá toppi til táar, með hita í baki, innbyggðum hátölurum, og fjöldann allan af nuddmöguleikum.

ShopChina.is

Súðarvogi 7
104 Reykjavík
www.shopchina.is

ShopChina er einnig með mjög virka Facebook-síðu www.facebook.com/ShopChinais

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum