fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
FókusKynning

Emerald ehf. – Hámarksgæði á lágu verði

Kynning

Gluggar, glerveggir, svalalokanir, svalaskjól og fleira

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 30. mars 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunarfélagið Emerald ehf., Norðurtúni 26, Álftanesi, sérhæfir sig meðal annars í innflutningi á svalalokunum, svalaskjólum, glerveggjum og gluggum. Svalalokanir eru úr hertu öryggislegri en einnig býður fyrirtækið upp á skilveggi úr hertu öryggisgleri fyrir verslanir, skrifstofur, verslunarmiðstöðvar og heimili.

Fjölbreytnin er mikil en Emerald leggur áherslu á að bjóða hámarksgæði á lágu verði. Þess vegna er fyrirtækið með mjög litla yfirbyggingu en flytur inn beint frá virtum og vönduðum framleiðendum. Þess má geta að Emerald hefur verið í samfelldum rekstri frá 2002 og hefur því lifað af ýmsar sveiflur í efnahagslífinu undanfarin ár, sem hafa ekki hvað síst komið illa við byggingarmarkaðinn.

Hvað varðar svalalokanir, gluggakarma og hurðir þá geta viðskiptavinir valið um að hafa efnið úr vönduðum viði á borð við Maghony eða Oregon Pine, eða nýta sér viðhaldsfríu PVC-lausnina, en PVC er hert plastefni sem hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi á undanförnum árum. Emerald býður upp á heila sólskála úr PVC og eru margir sem nýta sér þá hagstæðu og þægilegu lausn. Skálarnir eru úr viðarlíki að innan sem lítur út eins og viður.

Sem fyrr segir flytur Emerald beint inn frá virtum framleiðendum í Evrópu og er öll varan vottuð. Gluggarnir eru smíðaðir hjá framleiðanda og koma tilbúnir með körmum og póstum. Einnig er hægt að fá glugga með álkápu að utanverðu og við að innan.

Fyrir utan vörur og lausnir sem tengjast gluggum og gleri er Emerald stór söluaðili einingahúsa og ýmisskonar gámalausna. Fyrirtækið selur sumarhús af ýmsum stærðum, sem og gistihús, úr gámaefni. Þá selur Emerald rekstrarvörur á borð við ruslatunnur, SOS öryggisljós, hraðahindranir og keilur.

Ítarlegar og gagnlegar upplýsingar er að finna um vöruúrvalið og þjónustuna á heimasíðu Emerald

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum