fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Hin árlega Reykjavík Cocktail Weekend

Kynning

Kokteilhátíð sem enginn vill missa af

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. febrúar 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir hinni árlegu kokteilhátíð í samstarfi við helstu veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík dagana 3.–7. febrúar næstkomandi. Hátíðin hófst miðvikudaginn 3. febrúar og stendur til sunnudagsins 8. febrúar, og lýkur með úrslitakeppni í Íslandsmóti barþjóna og keppni milli veitingastaða í kokteilgerð í Gamla bíói. Undankeppnir fóru fram fimmtudaginn 4. febrúar. Tómas Kristjánsson, forseti Barþjónaklúbbsins, segir viðburðinn verða vinsælli með hverju árinu enda mikið fjör og stemming alla helgina.

Íslandsmeistarinn keppir á heimsmeistaramóti í Tókýó

Barþjónaklúbbur Íslands var stofnaður árið 1963 en ári seinna hóf klúbburinn að etja saman barþjónum landsins í kokteilgerð. Vinningshafi hefur ávallt hlotið nafnbótina Íslandsmeistari barþjóna og keppt fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna sem að þessu sinni fer fram í Tókýó í september.

Mynd: Sigurður Steinþórsson

Fjölbreyttir kokteilseðlar verða víðs vegar um Reykjavík

Fjölbreyttir kokteilseðlar verða víðs vegar um Reykjavík og munu staðirnir bjóða upp á kokteila á frábæru verði fram eftir kvöldi en um er að ræða kokteildrykki á aðeins 1.500 krónur til kl. 23.00 öll kvöldin dagana 3.–7. febrúar. Auk þess munu allir helstu umboðsaðilar áfengra drykkja verða með kynningu á sínum vörum meðan á keppni stendur í Gamla bíói og von er á góðri stemmingu í kringum viðburðina. „Því er um að gera að taka göngutúr um miðbæinn og skilja bílinn eftir því fjöldi góðra drykkja verður á boðstólum,“ segir Tómas. Dómnefnd er skipuð af Barþjónaklúbbi Íslands sem mun ganga á milli og smakka valda drykki af kokteilseðlum þátttökustaðanna og velja sex bestu drykkina sem keppa svo til úrslita á sunnudagskvöldið í Gamla bíói. Vinningsdrykkurinn hlýtur nafngiftina Reykjavík Cocktail Weekend drykkurinn 2016.

Mynd: Sólrún Lilja Ragnardóttir

Erlendir sérfræðingar fræða um vínheiminn

Einnig mun Barþjónaklúbburinn bjóða upp á svokallað „Master Class“ á Center Hotel Plaza laugardaginn 6. febrúar milli kl. 14.00 og 19.00, en þar býðst gestum að smakka nokkrar tegundir af áfengi ásamt því að njóta fróðleiks frá þeim sem best til þekkja frá hverjum framleiðanda fyrir sig. „Fyrirlestrar verða í boði á þessum tíma og mun fjölbreytileikinn ráða ríkjum, þar sem erlendir og innlendir gestafyrirlesarar koma og fræða okkur um vínheiminn,“ segir Tómas.

Gala-kvöld, uppistand með Önnu Svövu og ball með Dj Sigga Hlö

Á úrslitakvöldinu, sunnudaginn 7. febrúar, verður gala-kvöldverður í Gamla bíói þar sem Anna Svava verður með uppistand og Dj Siggi Hlö mun halda fjörinu uppi með balli fram eftir nóttu. Það kostar 6.900 krónur á mann í matinn en 1.000 krónur fyrir þá sem koma eftir kl. 22.00.

Mynd: Sigurður Steinþórsson

Nánari dagskrá á bar.is

„Það er von okkar að sem flestir láti sjá sig á Reykjavík Cocktail Weekend og njóti með okkur góðra veiga í bland við einstakan fróðleik, skál í boðinu!“ bætir Tómas við. Aðgangseyrir er 1.000 krónur á „Master Class“ á laugardeginum. Ítarlegri dagskrá helgarinnar má lesa á blaðsíðu 7 og á www.bar.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum