fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Aðventan, jólin og stressið

Mikilvægt að vera þakklátur og njóta þess sem maður hefur hverju sinni

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 4. desember 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Teitur Guðmundsson læknir skrifar:

Þessi tími þykir mér einn sá skemmtilegasti á árinu, enda er ég svo heppinn að eiga nær eingöngu góðar minningar um hann. Ég á afmæli í lok nóvember, og svo tekur við aðventan, undirbúningur fyrir jólin almennt, skreytingar með jólaljósum, jólalög, jólahlaðborð og samvera með vinum, samstarfsfélögum og fjölskyldu. Jólin sjálf með öllu sem þeim tilheyrir, góðum mat, spilamennsku og gjöfum að sjálfsögðu sem búið er að hafa ánægju af að velja, gefa og svo auðvitað þiggja.

Tími gleði og fögnuðar

Þá á dóttir mín afmæli þann 27. desember svo við erum alltaf með þriðja í jólum í okkar fjölskyldu, stutt er svo í áramótin sem aftur er tími gleði og fögnuðar í hópi vina og fjölskyldu með tilheyrandi sprengingum og litagleði á himni. Þetta er frábær skemmtun og vildi maður stundum óska þess að þessi tími væri lengri og kæmi oftar. Ég þekki marga sem eru miklu meiri jólabörn en ég og gangast upp í því að bæta um betur ár frá ári, bæði hvað varðar skreytingar og svo margt annað.

Sælla er að gefa en þiggja

Ég þekki líka þá sem gefa mikið af sér og hugsa um náungann, lifa í raun samkvæmt orðatiltækinu „sælla er að gefa en þiggja“. Þetta fólk er ekkert sérstaklega að segja frá slíku, en maður heyrir af því og þakkar í huganum fyrir slíkar hetjur sem þurfa ekki að hreykja sér af því sem vel er gert, þær vita að þetta skiptir máli og nægir að það skuli kæta náungann og gleðja hans hjarta.

„Eitt er þó víst að öll ráðum við tilfinningum okkar og getum ákveðið hvernig okkur líður, hvernig við högum okkur og hvernig við horfum á hlutina.“

Kvíði og vanlíðan

Öll getum við gefið af okkur og skiptir ekki máli hversu mikið, hugurinn er það sem telur, enda er ekki markmiðið að það séu peningar eða verðmæti heldur að það komi að gagni og hafi einhverja þýðingu, bæði fyrir þann sem gefur og eins fyrir þann sem þiggur. Það er ekki markmiðið hér að vera með einhverja predikun, ég held bara að þú sem lest þessa grein vitir nákvæmlega um hvað ég er að tala og því þarfnist það lítillar útskýringar. Það merkilega er þó hversu erfiðlega okkur gengur að fara eftir þessum einföldu viðmiðum, þá myndast kvíði og vanlíðan.

Litlu hlutirnir

Hver þekkir ekki orðið „jólastress“? Öll höfum við fundið fyrir slíku á einhverjum tímapunkti, líklega má skýra það með þeim miklu væntingum sem fylgja jólunum og því að þau eiga að vera hátíð ljóss og friðar. Jólunum fylgja hefðir sem helst má ekki breyta, dæmi um það er maturinn, hvar þau eru haldin, hver leikur jólasveininn og deilir út pökkunum og þannig mætti lengi telja. Það eru þessir litlu hlutir sem skipta okkur alveg ótrúlega miklu máli og verða að smellpassa svo við séum sátt og okkur líði vel, eða hvað?

Við höfum valið

Það liggur í hlutarins eðli að ekki eiga allir sömu möguleika á að njóta jóla, því miður. Þar kemur margt til og of langt mál að telja upp öll þau atriði sem geta haft áhrif hér á, hvort sem þau eru fjárhagslegs eða félagslegs eðlis, vegna veikinda eða vinnu. Eitt er þó víst að öll ráðum við tilfinningum okkar og getum ákveðið hvernig okkur líður, hvernig við högum okkur og hvernig við horfum á hlutina. Það er því gríðarlega mikilvægt að vera þakklátur og njóta þess sem maður hefur hverju sinni, gleðjast yfir jólunum og láta sér líða vel og ýta undir vellíðan annarra, það er hinn sanni jólaandi!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum