fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
FókusKynning

Aukapakki með skemmtilegum sokkum gleður þá sem vilja lit í tilveruna

Kynning

Sokkaskúffan

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 10. desember 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Sokkaskúffunni fást gjafir handa ungum og öldnum sem vilja hafa lit og skemmtilegheit í tilverunni. Þeim fjölgar sífellt sem hafa gaman af að vera í skrautlegum, fallegum og jafnvel skrýtnum sokkum, á meðan þeim fækkar sem líta á sokka sem hversdagslega nauðsyn eingöngu og klæða sig bara í svarta eða gráa sokka á hverjum morgni.

Sokkaskúffan er nýleg og alveg stórskemmtileg vefverslun sem býður upp á feikilega mikið úrval af fallegum, litríkum og bráðsniðugum sokkum. Sambýliskonurnar Fríða Agnarsdóttir og Hulda Ólafsdóttir Klein reka Sokkaskúffuna saman, en þær stofnuðu fyrirtækið á nýliðnu sumri og er lagerinn í einu herbergi á heimili þeirra. Viðtökur hafa verið verulega góðar enda eru litríkir og skrautlegir sokkar að verða sífellt vinsælli.

„Þetta er frábær gjafavara og margir sem vilja stinga sokkapari í pakkann eða hafa aukapakka með skemmtilegum sokkum. Jólasveinarnir versla gjarnan hjá okkur enda tilvalið að setja einn stakan sokk í skóinn í nokkur skipti. En langvinsælastar eru gjafaöskjurnar frá Oddsocks,“ segir Hulda og bætir við að hjá Sokkaskúffunni sé hægt að bjarga öllum jólagjöfunum á einum stað á skömmum tíma. „Fólk leitar gjarnan að gjafavöru sem tengist áhugamálum þess sem á að fá gjöfina. Til dæmis erum við með skemmtilega golfsokka fyrir golfarann, hundasokka fyrir hundaáhugafólkið og vínsokka fyrir konur sem elska góð vín.“

Nærbuxur bætast við

Sokkaskúffan nýtur sífellt meiri vinsælda enda eru skemmtilegir sokkar að verða sífellt útbreiddari: „Við höfum fengið frábærar viðtökur og erum stöðugt að bæta við vöruúrvalið. Einn birgirinn býður upp á nærbuxur í stíl við sokkana og við ákváðum að prófa það. Hefur selst töluvert af nærbuxunum og við stefnum á að bæta við.“

Sokkarnir eru enn sem komið er eingöngu seldir í gegnum vefverslunina á vefsvæðinu sokkaskuffan.is. Vörur eru sendar hvert á land sem er og er lagður á lítilsháttar sendingarkostnaður. Óhætt er að segja að vörurnar séu á hagstæðu verði en lesendur geta séð það sjálfir, sem og skoðað úrvalið, með því að fara inn á sokkaskuffan.is. Þær Fríða og Hulda stefna hins vegar að því að opna sokkaverslun í framtíðinni ásamt því að reka vefverslunina áfram.

Til sölu eru líka fallegar gjafaöskjur frá sokkaframleiðandanum Oddsocks sem Sokkasúffan selur mikið af sokkum frá. Oddsocks er breskt merki en Sokkaskúffan er líka með vörur frá bandaríska framleiðandanum K.Bell og pólska fyrirtækinu Soxo.

„Þegar við Hulda fórum af stað með þetta lögðum við mest upp úr því að finna birgja sem leggja áherslu á mikil gæði og þessi merki standa öll undir nafni sem gæðamerki,“ segir Fríða.

Sokkaskúffan er til húsa að heimili Fríðu og Huldu, að Vogatungu 34, Kópavogi. Viðskiptin fara hins vegar eins og áður sagði fram í gegnum vefverslunina sokkaskuffan.is. Upplýsingar eru líka gjarnan veittar í símum 866-8246 og 617-1013.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum