fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

6 matvæli sem hjálpa þér að berjast gegn pestunum

Sum matvæli eru betri en önnur þegar kemur að því að aðstoða ónæmiskerfið okkar

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 9. október 2016 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú þegar skólarnir eru byrjaðir og sumarleyfin á enda fara hinar árstíðabundnu pestir að láta á sér kræla. Engin ein leið er örugg til að koma í veg fyrir að smitast af slíkum pestum þótt handþvottur og almennt hreinlæti geti fleytt fólki langt. En er eitthvað annað sem við getum gert til að auka líkurnar á því að veikjast ekki? Fjölmörg matvæli eru talin búa yfir þeim eiginleikum að geta hjálpað ónæmiskerfi okkar að berjast gegn sýkingum af ýmsu tagi. Tímaritið Men‘s Health tók saman lista yfir nokkur þessara matvæla, til dæmis sætar kartöflur, sveppi og te.


Jógúrt

Allt í kringum okkur eru bakteríur sem hafa sína góðu og slæmu eiginleika. Kosturinn við þær góðu er að þær hjálpa okkur að verjast hinum slæmu. Góðar, eða velviljaðar, bakteríur eru alla jafna kallaðar probiotics og þær er meðal annars að finna í jógúrt. Þessir gerlar hjálpa líkamanum meðal annars að vinna gegn slæmum gerlum og halda meltingunni okkar í góðu jafnvægi. Þetta er ekki þeirra eini eiginleiki því gerlarnir eru einnig sagðir góðir fyrir ónæmiskerfið. Í Svíþjóð var gerð rannsókn hvað þetta varðar. Fylgst var með 181 starfsmanni í ónefndu fyrirtæki í 80 daga. Þeir starfsmenn sem neyttu velviljaðra gerla tóku 33 prósent færri veikindadaga en þeir sem fengu lyfleysu. Þessa góðu gerla má bæði nálgast í jógúrt og í töfluformi.


Hafrar og bygg

Bygg og hafrar eru korn sem innihalda beta-glucan, sérstaka tegund trefja sem sagðir eru hafa örverueyðandi áhrif. Þá er beta-glucan talið hafa einstaka andoxandi eiginleika. Samkvæmt umfjöllun Men‘s Health efla hafrar og bygg ónæmiskerfi manna auk þess sem þessar fæðutegundir eru taldar ýta undir jákvæða verkun sýklalyfja.


Hvítlaukur

Sumir forðast það eins og heitan eldinn að borða hvítlauk. Sannleikurinn er samt sá að hvítlaukurinn hefur ýmis jákvæð áhrif á mannslíkamann. Hvítlaukur inniheldur efnið allicin sem talið er gagnlegt í baráttunni gegn sýkingum og bakteríum. Samkvæmt breskri rannsókn, sem Men‘s Health vísar til, eru þeir sem taka hvítlauksþykkni síður líklegri til að fá kvef en aðrir. Gerð var rannsókn á 146 einstaklingum sem ýmist tóku lyfleysu eða hvítlauksþykkni í tólf vikur. Þeim sem tóku lyfleysuna var mun hættara við að fá kvef en hinum.


Te

Þeir sem drekka te reglulega eru síður líklegri til að verða veikir en þeir sem drekka það sjaldan eða aldrei. Men‘s Health vísar í rannsókn sem gerð var við Harvard-háskóla. Samkvæmt niðurstöðum hennar voru þeir sem drukku fimm tebolla af svörtu tei í tvær vikur með 10 sinnum meira magn af amínósýrunni L-theanine í líkamanum. L-theanine er talin gagnast í baráttunni gegn veirusýkingum og þá er þessi tiltekna amínósýra talin auka virkni taugaboðans sem vinnur gegn kvíða. Það er ekki bara í svörtu tei sem hún finnst því hún er einnig í grænu tei – skiptir þá engu hvort teið inniheldur koffín eður ei.


Sætar kartöflur

Sæta kartaflan hefur verið hálfgerð tískuvara á undanförnum árum og hefur hróður hennar aukist ár frá ári. Sætar kartöflur eru ekki bara bragðgóðar heldur eru þær einnig holl fæðutegund sem getur gagnast á ýmsa vegu. Sætar kartöflur innihalda talsvert magn A-vítamína og þar af leiðandi eru þær sagðar góðar fyrir húðina þar sem A-vítamín vinnur meðal annars gegn húðþurrki. Húðin er vissulega mikilvægur hluti ónæmiskerfisins og það getur skipt sköpum að hafa heilbrigða og góða húð. A-vítamín er einnig talið hamla vexti óæskilegra baktería. A-vítamín, eða beta-karótín, sem líkaminn umbreytir í A-vítamín, er einna helst að finna í gulu og dökkgrænu grænmeti.


Mynd: Sigtryggur Ari

Sveppir

Matsveppir hafa í aldanna rás verið notaðir til að styrkja ónæmiskerfi manna. Forfeður okkar höfðu rétt fyrir sér hvað varðar heilsubætandi áhrif matsveppa því samkvæmt rannsóknum eru þeir taldir hafa góð áhrif á hvítu blóðkornin í líkama okkar. Hvítu blóðkornin hafa því hlutverki að gegna að berjast gegn óæskilegum bakteríum í líkama okkar. Shiitake-sveppir, maitake-sveppir og reishi-sveppir eru sagðir innihalda mest af þessum góðu efnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum