fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
FókusKynning

Miðdepill fjölda ástarsagna

Kynning

Héraðsskólinn á Laugarvatni

Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 26. október 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástin hefur svo sannarlega fengið að blómstra í gegnum árin í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Árin 1928–1996 var þar starfrækt hótel á sumrin og menntaskóli á veturna og var þar vafalaust til ófárra ástarsambanda stofnað. Okkar ástkæri rithöfundur, Halldór Laxness, á svo meðal annars Héraðsskólanum að þakka að hafa kynnst henni Auði sinni þar sem hún vann þar við hótelstörf á sumrin. Því má segja að þetta glæsilega hús, sem hannað var af arkitekti Íslands, Guðjóni Samúelssyni, hafi ósjaldan verið miðdepillinn í fjölmörgum ástarsögum.

Vinirnir Sverrir Steinn Sverrisson og Sveinn Pálsson opnuðu húsið á nýjan leik árið 2013 og reka þar svokallað Boutique Hostel með veitingastað og ráðstefnuhöldum allan ársins hring. Veitingastaðnum er stjórnað af styrkri hönd franska kokksins Christophe Perrin, sem eldar gómsætan mat úr fyrsta flokks íslensku hráefni. Stefnan er að hafa lítinn og einfaldan matseðil þar sem hráefnið fær að njóta sín, auk þess bragðast allt svo miklu betur í sveitinni.

Morgunverðarhlaðborð.
Morgunverðarhlaðborð.

„Það er alltaf notalegt að komast úr borginni og heimsækja Bláskógabyggð. Hið fullkomna stefnumót hæfist á klassískum gullhring með stoppi í ísbúðinni í Efstadal og hádegisverði í Friðheimum. Eftir það væri dýrlegt að baða sig í laugunum í Fontana Spa. Ævintýragjarnir kjósa kannski frekar að kafa í Silfru á Þingvöllum eða skella sér í snjósleðahasar.

Ljúffengur íslenskur fiskur.
Ljúffengur íslenskur fiskur.

En það er alltaf gott að enda góðan dag með ljúffengum kvöldverði hér í gömlu skólastofunum í Héró, með gullfallegt útsýnið yfir vatnið og Heklu. Einhvers staðar verður maður svo að sofa og í Héraðsskólanum bjóðum við gestum upp á virkilega notaleg herbergi með glæsilegu útsýni,“ segir Sverrir. Í réttum skilyrðum dansa norðurljósin svo rómantískan polka fyrir áhorfendur eins og þeim einum er lagið.

Ástin blómstrar í fallegu umhverfi.
Ástin blómstrar í fallegu umhverfi.

Héraðsskólinn á Laugarvatni.
Nánari upplýsingar um bókanir og fleira má nálgast á vefsíðu hostelsins, heradsskolinn.is.
Héraðsskólinn er einnig áberandi á öllum samfélagsmiðlum svo sem Facebook, Instagram, Twitter, Pinterest, Youtube og Google+.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum