fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Fjölbreyttar vinnulyftur og vélaflutningar

Kynning

Leiguvélar Tobba, Dalsbraut 1, Akureyri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 21. október 2016 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er miklu öruggara og fljótlegra að nota vinnulyftur en uppreista palla við alls konar verkefni innan dyra sem utan. Þorbergur Aðalsteinsson hefur í rúm fimm ár rekið fyrirtækið Leiguvélar Tobba en þar á undan voru vélarnar leigðar út undir nafninu Pallaleigan ehf. „Ég keypti vélahlutann af Pallaleigunni ehf. árið 2011 og hef fjölgað vélum talsvert, en ég er eingöngu með vélknúnar eða rafknúnar vinnulyftur, enga palla,“ segir Þorbergur, sem gengur undir nafninu Tobbi.

Tobbi er með u.þ.b. 35 vélar í sinni eigu, af mismunandi stærðum og gerðum. Flestar eru vélarnar undir ameríska merkinu Genie en eru keyptar inn frá Evrópu og eru CE-merktar. Tobbi flytur sumar vélarnar inn sjálfur en aðrar kaupir hann af aðilum sem flytja inn vélar af þessu tagi. Um er að ræða svokallaðar skæralyftur, sem hífast beint upp í loftið, skotbómur eða bómulyftur sem ná upp og út til hliðanna og síðan er Tobbi líka með skotbómulyftara.

Þó að flotinn hjá Leiguvélum Tobba sé vænn þá veitir ekkert af honum því allar vélarnar hafa verið linnulaust í útleigu nánast allt árið. Leigutíminn er afar misjafn, allt frá einum degi upp í marga mánuði eða ár. Kappkostar fyrirtækið að veita sem besta þjónustu eftir þörfum hvers og eins, bæði hvað verðar lengd leigutíma og stærð og gerð tækjanna, enda eru verkefni viðskiptavinanna mjög fjölbreytt: „Þessi tæki eru notuð við viðhald húsa, húsbyggingar, reisingu stálgrinda húsa og einingarhúsa og margt fleira,“ segir Tobbi.

Þrátt fyrir að mikið sé að gera er Tobbi eini starfsmaður fyrirtækisins en hann kaupir stundum viðhaldsþjónustu til að halda tækjunum í toppstandi.

Vélaflutningabíll

Tobbi sinnir líka vinnuvéla- og bílaflutningum og nýtir til þess rennilegan Scania-vélaflutningabíl sem er í hans eigu. Þetta er 8 hjóla bíll og er þannig hannaður að hægt er að keyra bíla og vinnutæki beint upp á pallinn ef honum er hallað og rennt niður. Tobbi keyrir bílinn sjálfur eða kaupir flutningaakstur en fyrirtækið sinnir vélaleigu og vélaflutningum um allt Norður- og Austurland.

Leiguvélar Tobba eru staðsettar að Dalsbraut 1, Gleráreyrum, Akureyri. Til að panta útleigu eða vélaflutning eða fá nánari upplýsingar er best að hringja í síma 862 4991 eða mæta á staðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum