fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Megináherslan er á frábæra þjónustu og vandað fjarnám

Kynning

17.is ökukennsla er kjörinn staður fyrir alla til að byrja ökunámið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 18. október 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við höfum lagt ofuráherslu á gæði þjónustunnar og höfum fengið þau viðbrögð frá viðskiptavinum að þeir séu afar ánægðir með frábæra og hraða þjónustu. Þeir sem leita til okkar geta fengið allt á einum stað og við útvegum ökukennara um allt land sé eftir því óskað. Við erum eini ökuskólinn sem býður upp á að hægt sé að fá allan pakkann á einum stað. Þú færð Ökuskóla 1, 2 og 3, 15 ökutíma, próftökugjöld, kennslubókina og æfingarakstursmerkið – allt hjá okkur – og getur fengið að skipta kostnaðinum niður í allt að 12 greiðslur. Það er þægilegur kostur því þetta er nokkuð stór pakki fyrir fólk og mörgum finnst afar þægilegt að geta keypt allan pakkann á einum stað og greitt hann með raðgreiðslum.“

Þetta segir Sigurður Jónasson, eigandi ökuskólans 17.is. Sigurður er ökukennari og lögreglumaður. Hann hefur margra ára reynslu af kennslu í ökuskólum og gerð kennsluefnis. Sigurður hefur einnig annast kennslu í umferðarfræði, t.d. við Lögregluskóla ríkisins og í ökukennaranámi á vegum Háskóla Íslands. Hann hefur um árabil verið einn af vinsælustu ökukennurum á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann hefur kennt á bifreið, bifhjól og létt bifhjól.

Skjáskot úr Ökuskóla 1
Skjáskot úr Ökuskóla 1

Bjarnþóra M. Pálsdóttir starfar við skólann sem kennslufræðilegur ráðgjafi og styrkir faglega umgjörð hans enda hefur hún mikla reynslu af ráðgjöf og kennslu.

17.is veitir nám í fólksbílaakstri og bifhjólaakstri. Bóklega námið er allt á netinu en síðan eru öll próf tekin hjá Frumherja sem er framkvæmdaaðili ökuprófa á Íslandi. Ökunámið hjá 17.is er öllum opið óháð búsetu og 17.is útvegar síðan ökukennara í héraði hvers nemanda sé óskað eftir því.

„Við leggjum ekki áherslu á að vera stærst heldur að vera best í því sem við gerum. Okkar aðalsmerki er að veita frábæra þjónustu. Við rekum skólann á einu besta fjarkennslukerfi sem völ er á í dag og sem dæmi tekur það mig bara tvær mínútur að uppfæra og breyta kennsluefni ef breytingar verða á viðkomandi lögum og reglum. Innbyggt er síðan samskiptakerfi fyrir nemendur til að eiga samskipti sín á milli. Ökuskóli 1 og 2 er enn fremur talsettur og geta nemendur okkar opnað hljóðskrá fyrir hverja síðu. Það hefur gefist vel og hentar t.d. nemendum með lesblindu sérstaklega vel. Nemendum okkar hefur líkað einkar vel úrval myndbanda og mynda sem glæða námið á skjánum lífi.“

Sigurður segir að rafrænt nám af þessu tagi henti ungu fólki afar vel: „Netið er þeirra umhverfi. Þau leysa öll verkefnin aftur og aftur, fá endurgjöf frá mér og geta lært af henni.“

Fyrir utan gæði námsins veitir 17.is ökunám á mjög hagstæðu verði:

„Skólinn okkar býður langbesta verðið hér á landi vegna þess að við greiðum ökukennurum ekki fyrir að senda okkur nemendur eins og flestir aðrir skólar gera. Við bjóðum hins vegar alla nemendur velkomna, sama hvar þeir eru og sama hjá hvaða kennara þeir eru. Allir eru velkomnir og fá betra verð.“

Ítarlegar upplýsingar um skólann og námið er að finna á heimasíðunni 17.is sem og á Facebook-síðu skólans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum