Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
12:43 › 1. ágúst 2012
Stundvísi Icelandair, Iceland Express og WOW air var góð fyrri hluta sumars segir á vefnum Túristi.is.
Þar kemur hinsvegar fram að síðastliðin hálfan mánuð lækkaði hlutfall þeirra ferða sem voru á áætlun samanborðið við vikurnar á undan.
Minnst þó hjá Iceland Express og var félagið á réttum tíma í 91 prósent tilvika og voru tafirnar litlar.
Hjá Icelandair og WOW air voru um átta af hverjum tíu ferðum á áætlun.
Meðaltöf á brottförum þess síðarnefnda var 33 mínútur en 11 mínútur hjá Icelandair. Ástæðan er umtalsverð seinkun á nokkrum ferðum félaganna frá landinu.
Nánar um þetta á vefnum Túristi.is.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013