Föt fyrir tæknióða

Skór sem mæla stökk og belti sem er hleðslutæki

Tæknin er í sífelldri þróun en það eru föt einnig. Hvort sem það er með því að samtvinna þau tækninni eða sníða að notkun hennar. Dæmi um það nýjasta eru skór sem mæla skref og hopp, belti sem er hleðslutæki og buxur fyrir snjallsíma.

Alvöru skór

Nýjasta nýtt frá Nike er Hyperdunk-skórinn og „Sport Pack“ sem er fáanlegt með honum. Það er sem sagt hinn klassíski Hyperdunk-körfuboltaskór sem er einn sá vinsælasti sinnar tegundar um þessar mundir en í hann hafa verið settir sérstakir skynjarar. Þeir mæla hversu hátt, langt og oft þú hoppar. Hversu mörg skref þú tekur á sekúndu og hversu hratt þú hleypur. Þetta getur þú svo skoðað í gegnum appið Nike+Basketball. Frábært fyrir alla íþróttamenn sem og áhugamenn sem vilja fylgjast með árangrinum.

Rafmagnað belti

The Volt Buckle er nýtt belti sem er það eina sinnar tegundar í heiminum. Því sylgjan er um leið hleðslutæki sem hægt að stinga beint í vegg. Hægt er að nota sylgjuna fyrir allan búnað sem hleðst með USB-tengi. Hægt er að fá brúnt og svart leðurbelti og silfraða og svarta sylgju eða bronslitaða og svarta.

Símabuxur

Hver hefur ekki lent í vandræðum við að ná símanum upp úr gallabuxnavasa? Það vandamál er nú úr sögunni þar sem Warcom Jeans hefur framleitt sérstakar snjallsímagallabuxur. Um er að ræða gallabuxur með „glugga“ á. Þú getur opnað gluggann og svarað símanum í gegnum plastfilmu. Þú getur þess vegna farið á netið í vasanum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.